Helgi Pétursson, formaður Landssambands eldri borgara, er allt annað en sáttur við forsvarsmenn Strætó en breytingar sem gerðar voru á verðskrá þýða að árskort fyrir aldraða hækkar úr 25 þúsund krónur í 40 þúsund krónur. Nemur hækkunin um 60 prósentum.
Í samtali við Morgunblaðið í dag segist Helgi vera fullviss um það að breytingin komi ekki til með að auka nýtingu eldra fólks á strætisvögnum.
„Ég þekki vel til í Danmörku og þar sem ég bjó var eldra fólki boðið að kaupa árskort á 365 krónur eða fyrir krónu á dag. Alls staðar í kringum okkur er verið að stefna eldra fólki úr bílum í almenningssamgöngur, að minnsta kosti er verið að búa þannig um hnútana að þetta sé raunhæfur valkostur.“
Helgi segir að hugsunin hér á landi sé allt önnur.
„Mér finnst þetta mjög sérkennileg ráðstöfun og sem gamall formaður Strætó finnst mér þetta alveg út úr kú. Ég hefði aldrei samþykkt þetta,“ segir Helgi hann.