Helgi lögmaður biðst fyrirgefningar: „Fyrir það iðrast ég innilega“

Helgi Jóhannesson lögmaður hefur beðist opinberlega afsökunar á hegðun sinni og framkomu. Líkt og greint var frá um daginn hætti Helgi sem yfirlögfræðingur Landsvirkjunar í lok október eftir að hafa fengið áminningu vegna hegðunar í starfi. Stundin greindi frá því þann 11. nóvember að hann hafi ítrekað kallað samstarfskonu sína „lessulega“ fyrir framan aðra starfsmenn, þá hafi hann króað hana af úti í horni og strokið henni um kinn.

Þá hafa komið upp fleiri ásakanir á hendur Helga. Fram til þessa hefur hann ekki viljað ræða málið.

Helgi birtir færslu á Facebook, þar segir:

„Á liðnum dögum hefur verið hávær umræða í fjölmiðlum um óásættanlega framkomu mína, gagnvart konum, í gegnum tíðina. Mér er ljóst að framkoma mín, orðfæri og hegðun hefur sært, móðgað og látið samferðarfólki líða illa í návist minni og á því biðst ég fyrirgefningar.“

Hann segir að ásetningur sinn hafi aldrei staðið til að meiða eða særa. „…en mér er það nú ljóst að ég hef oft og tíðum farið óvarlega í samskiptum, nokkuð sem ég hugsaði ekki út í þegar atvik áttu sér stað. Fyrir það iðrast ég innilega.“

Helgi útskýrir hvers vegna hann hafi ekki viljað ræða ásakanirnar fyrr en nú:
„Það er ekki af hroka eða af því ég tek umræðuna ekki alvarlega sem ég hef ekki tjáð mig opinberlega fyrr en nú. Ég geri það svo sannanlega. Ég hef hreinlega ekki treyst mér inn í umræðuna. Nefnd hafa verið ákveðin atvik og vafalaust hef ég með orðum eða athöfnum gerst sekur um slíkt í fleiri tilvikum. Ég ætla ekki að fara efnislega ofan í þær ásakanir sem á mig hafa verið bornar. Það hjálpar engum að deila um þær atvikalýsingar.“

Hann heldur áfram:
„Ég veit að einföld afsökunarbeiðni og iðrun virðist léttvæg undankomuleið úr þeim sárindum sem ég hef valdið. Ég hef þó ekki annað fram að færa og bið þess innilega að fyrirgefningarbeiðni mín verði tekin til greina. Ég er hvenær sem er tilbúinn til að hitta hvern þann sem ég hef misgert við með hegðun minni og ræða málið og ítreka afsökunarbeiðni augliti til auglitis.“

Helgi hefur leitað sér aðstoðar: „Ég hef undanfarna mánuði verið að vinna með aðstoð fagaðila í sjálfum mér, eins og sagt er. Það er ævilangt verkefni að verða að betri manni og ég er að taka það verkefni alvarlega.“