Helgi læknir furðar sig á vinnubrögðum Landspítala: „Þýðir samt ekki að það megi bara loka augunum“

Helgi H. Sigurðsson, æðaskurðlæknir og forstöðulæknir skurðlækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri, er allt annað en sáttur með Landspítalann.

Þetta kemur fram í frétt Fréttablaðsins, en miðillinn hefur undanfarið greint frá veikindum tveggja kvenna sem glíma við æðaþrengingarvandamál. Þær þurftu báðar að leita sér hjálpar á Landspítala vegna veikindanna, en í báðum tilfellum var talið að veikindin væru vegna geðrænna vandamála.

„Það er forkastanlegt að Landspítali skuli ekki taka að sér greiningu og meðferð svona tilfella,“ segir Helgi, en honum finnst að ef menn treysti sér ekki til að sinna sjúklingum með vandamál sem þessi ættu þeir að minnsta kosti að sjá sóma sinn í að hjálpa þeim að fá viðeigandi meðferðir annars staðar.

„Þetta er sjaldgæft en þetta er til og það er kannski ekkert skrýtið að það hafi ekki margir reynslu af þessu, greina þetta og meðhöndla. Það þýðir samt ekki að það megi bara loka augunum,“ segir Helgi um að Landspítalinn viðurkenni vandan ekki sem sjúkdóm.

Nánar er hægt að lesa um málið á vef Fréttablaðsins.