„Ekki blekkja þig, ekki halda að það sé einhver hetjuskapur að velta annarri manneskju upp úr augljóslega pínlegum mistökum sem hún er sjálf að gjalda fyrir og koma mest niður á henni sjálfri. Þetta er smitskömmun. Nákvæmlega svona lítur hún út.“
Þetta segir Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, um viðbrögð sumra við COVID-19-smiti Víðis Reynissonar, yfirlögregluþjóns hjá almannavarnardeild ríkislögreglustjóra. Víðir sagði frá því um helgina að um tólf einstaklingar hefðu komið í heimsókn til hans og konu hans áður en smitið kom upp.
Sóley Tómasdóttir, femínisti og fyrrverandi borgarfulltrúi, sagði á Twitter í gær að hún gæti ekki varist tilhugsuninni um að gagnrýnin á Víði væri mögulega harðari ef hann væri kona. Einn bendir henni á að Alma Möller landlæknir sé kona og ekki hafi verið gengið hart að henni.
„Hún er ekki heldur með covid eftir að hafa fengið 12 manneskjur í heimsókn til sín á einni helgi,“ svaraði Sóley á móti. Hringbraut fjallaði svo í gær um pistil Jóhönnu Jakobsdóttur líftölfræðings sem var í áfalli yfir því hvað margir komu á heimili Víðis. „Ef allir myndu hitta tíu manns heima hjá sér á 48 klukkustunda tímabili þá værum við í vondum málum,“ sagði hún meðal annars.
Fleiri athugasemdir í þessum dúr mátti finna undir færslu Víðis á laugardag þar sem hann lýsti aðdragandanum að smitinu.
Helgi Hrafn bendir á að engum sé greiði gerður með því að velta viðkomandi upp úr mistökum.
Ólöf Embla, sem titlar sig meðal annars femínista, kveðst ósammála Helga Hrafni og segir að málið snúist um misvísandi skilaboð úr verstu átt. Spurði hún Helga hvort rangt væri að gera ríkari kröfur um gott fordæmi til þeirra sem leiða baráttuna gegn veirunni.
„Ha, eru skilaboðin misvísandi? Hvaða önnur skilaboð en þau sem Víðir hefur verið að predika, lest þú úr þessum aðstæðum? Ég sé bara ein skilaboð. Að við þurfum að passa okkur og taka þetta alvarlega. Ég sé engin önnur skilaboð neins staðar,“ sagði Helgi.
Helgi Hrafn heldur áfram:
„Ef þú, eða fólk sem þú þekkir, grundvallar trúna á skilaboðin á fullkomleika þeirra sem boða þau, þá er það vandamál sem þarf að leysa. Predikarinn er ekkert syndlaus í þessu frekar en öðru, og það breytir nákvæmlega engu um boðskapinn sjálfan.
M.ö.o. er ég já, svolítið að ögra þeirri hugmynd að fólk eigi að stóla svona mikið á fyrirmyndir. Fólk á að trúa boðskapnum vegna þess að hann er rökréttur og skynsamur, ekki vegna þess að við séum öll einhver börn sem eigum að hlýða yfirvöldum eins og einhverjum foreldrum.“
Helgi sagði enn fremur að það sé ekkert mál að réttlæta smitskömmun, þess vegna sé hún jú til staðar.
„En þetta viðhorf er líka ákveðin ábyrgðarfirring. Trúin á boðskapinn á ekki að byggja á því að predikarinn sjálfur sé syndlaus. Ekkert í boðskapnum hefur breyst, þvert á móti. Heilræði hans voru samkvæmt sérstakri þekkingu sem hann hefur sem hann hefur núna persónulega reynslu af. Ef eitthvað er, þá er meiri ástæða til að hlusta núna, ekki minni. En smitskömmunin snýst um að dæma hann, ekki heilræðin, enda standa þau sannari en nokkru sinni fyrr.“
Smitskömmun.
— Helgi Hrafn Gunnarsson (@helgihg) November 30, 2020
Ekki blekkja þig, ekki halda að það sé einhver hetjuskapur að velta annarri manneskju upp úr augljóslega pínlegum mistökum sem hún er sjálf að gjalda fyrir og koma mest niður á henni sjálfri.
Þetta er smitskömmun. Nákvæmlega svona lítur hún út.