Helgi Vilhelm Jónsson, hæstaréttarlögmaður og löggiltur endurskoðandi, er látinn, 84 ára að aldri. Greint er frá andláti hans í Morgunblaðinu í dag, en hann lést á Sólteigi á Hrafnistu í gær.
Helgi skaraði fram úr á mörgum sviðum og var býsna fjölhæfur íþróttamaður á sínum yngri árum. Til marks um það spilaði hann fótbolta, handbolta og körfubolta í meistaraflokki. Lengst náði hann í fótboltanum en á ferli sínum lék hann þrjá A-landsleiki og var í hinu svokallaða gullaldarliði KR sem vann fjölmarga Íslandsmeistaratitla.
Helgi lét mikið að sér kveða í atvinnulífinu eftir að hafa lokið námi í lögfræði og endurskoðun. Hann var borgarendurskoðandi á árunum 1966 til 1975, var einn stofnenda Endurskoðunar hf. (KPMG ehf.) árið 1975 og starfaði þar við endurskoðun og lögmennsku til 2001.
Helgi sat í ríkisskattanefnd, stjórn SKÝRR, var formaður kjaradeilunefndar, formaður nefndar til að endurskoða lög um kjaradóm, formaður kauplagsnefndar og formaður samninganefndar Tryggingastofnunar ríkisins í tæplega 20 ár, til ársins 2001.
Eftirlifandi eiginkona hans er Ingibjörg Jóhannsdóttir danskennari og húsfreyja. Börn þeirra eru Hanna Lára, Anna Dóra, Jón Sigurður og Halla María.