„Núna eru fyrirtækin að berjast í bökkum og þá er ekki rétti tíminn til að rífast, heldur finna lausnir saman. Þannig komumst við upp úr ástandinu og getum horft saman til framtíðar,“ segir Helgi Vilhjálmsson, eigandi sælgætisgerðarinnar Góu.
Helgi hefur sent frá sér auglýsingar undir yfirskriftinni Höldum fólki í vinnu. Í auglýsingunni færir Helgi rök fyrir því að hægt sé að bjarga fjölda starfa í atvinnulífinu með tímabundinni lækkun mótframlags atvinnurekenda í lífeyrissjóði.
Staða efnahagsmála hér á landi – eins og víða annars staðar – er erfið í ljósi kórónuveirufaraldursins. Helgi segir að mótframlag atvinnurekenda í lífeyrissjóð hafi hækkað mikið á síðustu árum. Þannig sé það 11,5% í dag en var 8% árið 2016.
„Ef við við skoðum þetta nánar, þá myndi það bjarga yfir 6500 störfum ef mótframlagið yrði lækkað aftur í 8%. Þetta eru svo stórar tölur. Bara þessi lækkun myndi lækka launakostnað fyrirtækja um 39 milljarða á ári án þess að útborguð laun myndu lækka. Það skiptir okkur núna mestu máli að finna leiðir til að lækka kostnað án þess að fókið finni fyrir því. Atvinnuleysi er versti óvinur fólksins“, segir Helgi um auglýsingarnar sínar.
Hér fyrir neðan má sjá auglýsingarnar sem birtust í blöðum dagsins í dag: