Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, segir að Sósíalistaflokkurinn hafi algjörlega séð um það sjálfur að missa af því að koma sér inn á þing í nýafstöðnum þingkosningum.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í fjörugum umræðum á þræði Össurar Skarphéðinssonar, fyrrverandi ráðherra, um kosningarnar um þar síðustu helgi.
Í færslu sinni sagði Össur að skrímsladeildin svokallaða í Sjálfstæðisflokknum hefði tekist að skjóta Gunnari Smára Egilssyni, stofnanda Sósíalistaflokksins, niður fyrir lágmarkið sem þurfti til að flokkurinn kæmi mönnum að. Helgi Hrafn vill aftur á móti meina að Sósíalistaflokkurinn hafi séð um það sjálfur og nefnir hann nokkur atriði því til stuðnings.
„Sósíalistaflokkurinn var linnulaust daðrandi við afnám markaðshagkerfis og kommúnískt alræði. Ef maður spurði þau t.d. út í Kúbu kom ekki ræðan um hvernig þeirra sósíalismi væri sko eitthvað allt annað og miklu betri, heldur hvernig kúbverskt stjórnarfar væri í rauninni ekkert svo slæmt. Svo urðu sum þeirra voðalega móðguð ef maður kallaði þau kommúnista, og töldu það einhvern misskilning.“
Helgi Hrafn segir að málflutningur þeirra hafi á engan hátt verið aðgreinanlegur frá málflutningi kommúnista. „Markmiðið á engan hátt aðgreinanlegt og aðferðafræðin af þeirri einu ástæðu að þau vita að þau myndu tapa byltingu, því fólk er bara búið að læra of mikið af sögunni til að þetta rugl hafi snefils trúverðugleika lengur.“
Helgi bætir síðar við að Sósíalistar hafi kallað eftir afnámi markaðshagkerfisins. Samt sem áður hafi flokkurinn sýnt ákveðna feimni við að svara spurningum, til dæmis um stjórnarfarið á Kúbu.
„Og af hverju er feimnin? Hún er vegna þess að þessi ömurlegi málstaður Sósíalistaflokksins þarf bæði að vera, en má samt ekki vera. Hann getur ekki opinberlega kallað sig kommúnískan vegna þess að það væri honum til athlægis, en hann getur heldur ekki hafnað kommúnismanum eins og þeim sem er í Kúbu, vegna þess að þá skyndilega hverfa allar ástæður fyrir því að kjósa hann frekar en Samfylkinguna eða VG.
En þetta er sjálfskapað víti, og óhjákvæmileg afleiðing þess að fólk stofni flokk til að daðra við eina ógeðslegustu stjórnmálastefnu sem fólki hefur dottið til hugar að koma á nokkurs staðar.“
Helgi heldur áfram og nefnir dæmi máli sínu til stuðnings.
„Vilja Sósíalistar, eða vilja Sósíalistar ekki, afnema einkaeignarétt yfir framleiðslutækjum? Svarið sem ég fékk seinast var „annað hvort eru framleiðslutækin í eigu almennings eða ekki“. Sumsé kommúnismi. Forritarinn þarf þá væntanlega að afhenda ríkinu fartölvuna og kannski heilann í sér líka. Eða ekki? Má hann góðfúslega eiga hana en bara með leyfi „almennings“? Hvað í fjandanum er verið að segja með svona löguðu, ef ekki það sama og kommúnistarnir sem réttlæta ógnarstjórnir sínar með nákvæmlega sömu orðræðu?“
Umræðuna má sjá í heild sinni undir færslu Össurar: