Helgi Hrafn sá áhugaverð samtök en hætti snarlega við að ganga í þau

„Fátt sýnir jafn vel hversu litlu máli það getur skipt að velja rétt orð, heldur en heiti á þjóðríkjum, stjórnmálaflokkum og félögum,“ segir Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, í áhugaverðri færslu á Facebook-síðu sinni.

Þar segir hann frá því að honum hafi flogið til hugar að ganga í ákveðinn félagsskap sem heitir því háæruverðuga nafni Félag skattgreiðenda. Ef marka má færslu Helga virðist hann hafa hætt snarlega við þegar hann sá stefnu félagsins.

„Þar sem ég er vissulega skattgreiðandi og horfi glaður á tölurnar á launaseðlinum sem fara til hins opinbera. Mér finnst ekki bara í lagi að borga hátekjuskatt, heldur er ég beinlínis ánægður með það. Mér líður alveg eins af því að borga skatta, og mér líður af því að sinna tæknimálum í sjálfboðaliðavinnu fyrir félög sem ég er meðlimur í. Mér líður vel af því að vita að ég sé að gera eitthvað gagn, og illa þegar mér líður eins og ég geri það ekki.“

Helgi Hrafn segist því hafa ætlað að ganga í samtökin en hann veitti því athygli að á vefsíðu félagsins standi meðal annars að félagið beiti sér fyrir því að skattar verði lækkaðir eftir megni.

„Mér finnst það eins og að vera í stjórnmálaflokki en vilja taka sem minnstan þátt. Maður hefði haldið að í félagi skattgreiðenda væri fólk sem væri stolt af því að tilheyra þeim félagsskap. Það er sjálfsagt að nýta peningana sem best, en að nýta eitthvað vel er ekki það sama og að nýta það lítið,“ segir hann og bætir við að honum finnist vanta það sjónarmið í grunnstefnu Félags skattgreiðenda.

„Stolt yfir því að vera skattgreiðandi. Stolt yfir því að borga sem mesta skatta. Metnaður fyrir því að verða svokallaður „skattakóngur“ (eða skattaleiðtogi eða hvað fólk vill kalla það). Ég myndi ganga í þann félagsskap. Enda er ég skattgreiðandi og bara fjandi ánægður með að hafa þau forréttindi að vera einn slíkur.“

Skafti Harðarson er formaður Samtaka skattgreiðenda en þau voru stofnuð árið 2012.