„Þetta ætlar ekki að verða góður dagur hjá Helga Hrafni vini mínum,“ segir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Twitter-síðu sinni.
Eins og landsmenn muna eflaust margir hljóp Helgi Hrafn úr pontu Alþingis þegar öflugur skjálfti reið yfir á höfuðborgarsvæðinu þann 20. október síðastliðinn.
Fjölmargir hafa rifjað þetta upp á Twitter í morgun eftir að hrina öflugra skjálfta reið yfir á suðvesturhorni landsins. Öflugasti skjálftinn, þegar þetta er skrifað, var 5,7 að stærð en margir skjálftar yfir 4 að stærð hafa einnig mælst. Helgi Hrafn segir sjálfur á Twitter í morgun að hann hafi ekki verið viss hvort um jarðskjálfta hafi verið að ræða eða hvort heimurinn væri bara að hrynja eins og venjulega.
Hér má sjá nokkur tíst þar sem atvikið frá því í október er rifjað upp.
Hvert hljóp Helgi Hrafn í morgun? #skjálftavaktin pic.twitter.com/x1ushN0VIU
— Hrafnkell Helgi Helgason (@HHelgason7) February 24, 2021
Stóra spurningin er hljóp Helgi Hrafn aftur út?
— Hilmir (@H1lm1r) February 24, 2021
Þetta ætlar ekki að verða góður dagur hjá Helga Hrafni vini mínum
— Brynjar Níelsson (@BrynjarNielsson) February 24, 2021
Velti fyrir mér hvar Helgi Hrafn sé staddur núna? Og situr Steingrímur enn? Það þarf einhver að covera þetta! #earthquake
— Hanna Kristín (@HannaKristn1) February 24, 2021
HVAR ER HELGI HRAFN?
— Jón Bjarni (@jonbjarni14) February 24, 2021