Helgi Hrafn með CO­VID-19: „Endi­lega farið var­lega“

Helgi Hrafn Gunnars­son, þing­maður Pírata, hefur greinst með kórónu­veiruna sem veldur CO­VID-19. Helgi greinir sjálfur frá þessu í færslu á Face­book-síðu sinni.

„Nú flyt ég ykkur þær fréttir að ég hef greinst með CO­VID-19. Af þeirri ör­stuttu reynslu sem ég hef af þessum sjúk­dómi er mér orðið ljóst að fólk verður hratt ótta­slegið og ó­þreyju­fullt eftir upp­lýsingum. Því vil ég minna á að þetta er ferli, og smitrakning tekur ein­hvern tíma. Greiningin kom í gær­kvöldi og ég hef gert lítið annað en að tala við fólk, ýmist sér­fræðinga eða ná­komna, sinna smitrakningu og til­flutningi í ein­angrun,“ segir Helgi.

„Ef þið hittuð mig á mánu­dag eða þriðju­dag og við um­gengumst hvort annað í meira en 15 mínútur, og ekki hefur verið haft sam­band við ykkur frá smitrakningu nú þegar, getið þið haft sam­band við mig og ég svara eftir bestu getu. Ég hef haft sam­band við sum ykkar en ekki önnur og stýrist það af að­stæðum. Ykkur er frjálst að henda í mig spurningum ef þið hafið á­hyggjur, en at­hugið að ég er ekki sjálfur endi­lega með öll svörin. Ég reyni mitt besta til að upp­lýsa fólk með á­hyggjur eftir bestu vitund,“ segir hann.

Hann bendir á að þingið hafi ekki verið starfandi síðan 4. septem­ber og það taki ekki til starfa aftur fyrr en 1. októ­ber.

„Þannig að þótt CO­VID-19 smit sé alltaf ó­heppi­legt, þá er tíma­setningin gagn­vart þing­störfum ekki sú versta upp á smit­leiðir og þing­störf að gera. Að sjálf­sögðu er þó farið í einu og öllu eftir til­mælum og ráð­gjöf sótt­varnar­yfir­valda þegar kemur að þing­lokknum og starfs­fólki hans, t.d. hvað varðar sótt­kví. Þá er Al­þingi að sjálf­sögðu með­vitað um stöðuna og hefur gert við­eig­andi ráð­stafanir.“

Helgi segir að hann sé við á­gæta heilsu enn sem komið er. „En auð­vitað verðum við bara að sjá hvað setur. Ég fæ heil­ræði frá þeim sem þekkja best til. Endi­lega farið var­lega. Það kom mér ekki minna á ó­vart að smitast en það kæmi þér að smitast núna. Við erum öll al­manna­varnir.“