Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata hefur komið Hannesi Hólmsteini til varnar eftir að samfélagsmiðlastjarnan Bassi Maraj sagðist í gríni ætla birta kynferðisleg samskipti Hannesar af forritinu grindr.
„Jésus Hannes hver hleypti þér á twitter og áður en þú ferð að rífa þig þá á ég ss af grindr spjallinu okkar,“ skrifaði Bassi til Hannesar í gær.
„Það er nákvæmlega ekkert töff eða flott við það segja einhverjum að þegja með hótun um birtingu kynferðislegra samskipta,“ skrifar Helgi Hrafn á Twitter í dag en færsla hans hefur verið til umræðna á samfélagsmiðlinum í dag.
Ekki eru allir sáttir með að Helgi Hrafn hafi tekið upp hanskann fyrir Hannes en og ákvað Helgi Hrafn því að ítreka orð sín og segjast frekar vilja vera óvinsæll en að þegja yfir þessu.
„Nei, fjandinn hafi það, ég vil frekar vera óvinsæll en að þegja yfir þessu. Þetta er ekkert minna en ógeðslegt. Það vekur hrylling að sjá gott fólk fagna þessu. Þetta er ofbeldi og er ekkert réttlætanlegra gegn þessum einstaklingi frekar en öðrum. Hættið þessu,“ skrifaði Helgi.
Nei, fjandinn hafi það, ég vil frekar vera óvinsæll en að þegja yfir þessu. Þetta er ekkert minna en ógeðslegt. Það vekur hrylling að sjá gott fólk fagna þessu. Þetta er ofbeldi og er ekkert réttlætanlegra gegn þessum einstaklingi frekar en öðrum. Hættið þessu. https://t.co/7EI44jlwJj
— Helgi Hrafn Gunnarsson (@helgihg) March 27, 2021
Deilur Bassa við hægri menn á twitter hófust í vikunni er hann sagðist vera svo hugmyndaríkur að hann ætti að gera hugmyndir fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Bjarni svaraði sagði við Bassa að alla hugmyndir væru vel þegnar og lét Bassi Bjarna í kjölfarið heyra það.
Hér er hugmynd... hvar er nýja stjórnaskràinn? With ya dumb ass face you aint eating but i swear u got some bum ass taste !? Og hvernig væri að redda mér reikning í panama with your scammin ass allavegana nota peninginn sem þú ert að scama i að kaupa handa mer burkin 😏
— bassi maraj (@bassimaraj) March 25, 2021