Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, fer með nokkuð veigamikið hlutverk í nýrri auglýsingu Flokks fólksins. Í auglýsingunni, sem er nokkuð tilfinningaþrungin, er birt myndband af ræðu Helga úr pontu Alþingis þar sem hann talar um frumvarp sem Flokkur fólksins fékk samþykkt á Alþingi.
Bent er á það að flokkurinn hafi í stjórnarandstöðu fengið tvö mikilvæg mál samþykkt á Alþingi.
Annars vegar var samþykkt að stofna embætti hagsmunafulltrúa aldraðra og hins vegar að blindum og sjónskertum stæðu til boða leiðsöguhundar sér að kostnaðarlausu.
Flokkarnir sem bjóða nú fram til Alþingis eru nú í óða önn að undirbúa sig fyrir kosningarnar sem fara fram í september næstkomandi. Miðað við nýlegar skoðanakannanir ætti Flokkur fólksins að koma mönnum að og það er væntanlega helsta markmið Ingu Sæland að halda flokknum á þingi. Ef marka má texta sem birtist við auglýsinguna er Flokkur fólksins stórhuga því spurt er:
„Geturðu ímyndað þér hvað Flokkur Fólksins gæti gert í ríkisstjórn?“