Helgi Hrafn fengið nóg: „Fyrirgefið orðalagið en djöfullinn hafi það“

„Þetta er svo gjörsamlega óþolandi á Íslandi, að það er alltaf látið eins og vanhæfi sé spurning um að vera dæmdur fyrir einhvern glæp,“ segir Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, á Facebook-síðu sinni.

Þar gerir Helgi viðtal Vísis í dag við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra að umtalsefni.

Í viðtalinu sagðist Katrín ekki hafa séð neitt í störfum Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem gefi henni tilefni til að vantreysta honum á meðan Bjarna þótti ekki eðlilegt að tjá sig um samskipti Kristjáns við meðlim skæruliðadeildar Samherja.

Helgi Hrafn segir í færslu sinni að það sé deginum ljósara að Kristján Þór sjávarútvegsráðherra sé tengdur þessu „hrikalega“ fyrirtæki eins og hann orðar það mjög nánum vinaböndum.

„Það er einmitt sjávarútvegsráðherra sem ætti að hafa forgöngu um að skoða Samherjamálin í kjölinn og vinna að úrbótum sem geta fyrirbyggt að þetta fyrirtæki haldi áfram að láta eins og það megi njósna, hóta, ljúga og grafa undan persónulegum starfsframa fólks fyrir að fjalla um hann. Samherjamálin varða nefnilega... sjávarútvegsmál, þótt ótrúlegt megi virðast. Það eru efnisatriði í umræðunni sem varða sjávarútvegskerfið okkar, hvernig laun sjómanna eru reiknuð og fleira í þeim dúr. Þetta er bara einfaldlega á borði sjávarútvegsráðherra hvort sem honum líkar það betur eða verr,“ segir hann.

Helgi Hrafn segir að Kristján Þór sé eflaust „ágætis gaur“ sem gerir allt sem hann getur til að láta hagsmuni ekki skarast.

„Það er bara ekki málið. Málið er að hann er vanhæfur í embættið. Ekki óhæfur, heldur vanhæfur. Það er munur á þessu tvennu. Það eina sem Kristján getur gert til að forðast að hafa óheilbrigð afskipti af málinu, er að hafa engin afskipti af því yfirhöfuð. Og hvað ef það er bara hið prýðilegasta mál fyrir Samherja?“

Helgi Hrafn er þeirrar skoðunar að þörf sé á nýjum ráðherra í ráðuneyti sjávarútvegsmála.

„Vinsamlegast verið ekki að bera annað eins kjaftæði á borð og að það sé á einhvern hátt einhver vafi um að sjávarútvegsráðherra sé vanhæfur. Auðvitað á hann annaðhvort að skipta um ráðherraembætti eða segja af sér sem ráðherra. Ekki því að hann er sekur um neitt, heldur vegna þess að það er eina leiðin til að staðan - ekki einstaklingurinn, heldur staðan - njóti snefils af trúverðugleika gagnvart þessu ótrúlega fyrirtæki. „Fyrirgefið orðalagið en djöfullinn hafi það, hvað þetta er augljóst.“