Helgi Hrafn: „Ef Þórólfur mælir með hundrað sprautum skal ég taka hundrað sprautur“

Helgi Hrafn Gunnarsson fyrrverandi þingmaður Pírata vekur Facebook vini sína til umhugsunar með hugvekju um málefni tengdum bólusetningum. Í hans huga kemur ekkert annað til greina en að þiggja örvunarskammt og mælir með að allir geri slíkt hið sama.

Hann hefur pistilinn svona: „Ég skal taka örvunarskammti af bólusetningu ef mér býðst hún. Ekki vegna þess að ég telji bólusetningar vera eina læknisfræðilega inngripið sem hafi engar mögulegar aukaverkanir (enda slík ekki til, nema þau sem hafa engin áhrif yfirhöfuð), og ekki heldur vegna þess að ég telji að það sé búið að rannsaka umfram allan vafa að því fylgi engin hætta. Að mér vitandi hefur það hvorki verið leyndarmál, né hneyksli, að nýjum bóluefnum fylgi ákveðin áhætta,“ segir Helgi.

Hann gefur lítið fyrir málflutning „samsæriskenninga-smiða“ eins og hann kallar efasemdarmenn bólusetninga. Hann segir þó að vitanlega fylgi bólusetningum áhætta: „Í læknisfræði er stanslaust, ævarandi og eilíft mat milli mismunandi tegunda af áhættu. Að gefa pensillín felur í sér mat á áhættu þess að nota lyfið gegn áhættunni af því að vera veikur. Hið sama gildir um hálskirtlatökur og öll önnur læknisfræðileg inngrip, þar á meðal bóluefni. Stundum er áhættumatið auðvelt og stundum er það erfitt,“ segir Helgi.

Þó segir hann að í tilfelli þess faraldurs sem nú geysar sé valið auðvelt. Hann fékk sjálfur Covid-19 sjúkdóminn: „Ég hef fengið COVID-19, og skal spara ykkur bölmóðinn yfir þeim andskota. Valið í mínum huga er mjög einfalt. Hætturnar af bóluefnunum eru varla umhugsunar virði við hliðina á hættuna af sjúkdómnum COVID-19,“ segir Helgi.

Hann vekur lesendur til umhugsunar og setur upp dæmi: „Gerum smá hugartilraun. Segjum að það sem er í dag mögulegar hliðarverkanir bóluefnanna væru sjúkdómurinn, en einkenni COVID-19 væru þekktar hliðarverkanir bóluefnis. Mynduð þið taka það bóluefni? Ekki myndi ég gera það, og það væri ekki einu sinni stungið upp á því, af þeirri einföldu ástæðu að annað er svo augljóslega, svo miklu, miklu, miklu verra en hitt; og það sem er verra, er helvítis sjúkdómurinn COVID-19.“

Þá bætir hann við að það sé engin tilviljun að fólkið sem hefur hvað hæst í andstöðu gegn bólusetningu sé sama fólk og geri lítið úr alvarleika og einkennum Covid-19.

Helgi heldur áfram að segja frá raunum sínum: „Nú get ég auðvitað ekki sannað fyrir ykkur að COVID-19 sé til og sé alvarlegur sjúkdómur. En ég þekki hann á eigin skinni. Og með þá reynslu í farteskinu skal ég segja ykkur að það er alger no-brainer fyrir mig að taka allar þær örvunarsprautur sem bjóðast.“

Hann ítrekar að hann myndi ekki hika við að fara eftir ráðleggingum sérfræðinga og þiggja allar þær sprautur sem í boði eru: „Ég skal taka þær tíu sinnum ef sóttvarnalæknir telur það til bóta. Nei, vitiði, ég skal bara taka hana eins oft og sóttvarnalæknir telur ráðlegt; ef hann mælir með hundrað sprautum skal ég taka hundrað sprautur. Áhættumatið er mjög einfalt í mínum huga. Þessi sjúkdómur fer mjög illa með sum okkar í mjög langan tíma, jafnvel ef við verðum ekki einu sinni það veik vikurnar eftir smit,“ segir Helgi.

Hann segir það ekki einu sinni spurningu í sínum huga hvort hann þiggi þriðju sprautuna, ef hún býðst.

Þá drepur Helgi einnig á gremju fólks yfir því sem ekki varð. Hann segir að ekki hafi verið hægt að lofa neinu í sambandi við faraldurinn, og raun hafi engu verið lofað: „Það er svolítið um að fólk segi eitthvað á borð við „okkur var sagt að [eitthvað sem gerðist ekki]“. Það er einfaldlega ekki rétt, að okkur hafi verið sagt neitt um þennan faraldur af fullkominni vissu. Það var aldrei, og verður aldrei öruggt, að næsta sprauta dugi. Það var aldrei, og verður aldrei öruggt, að veiran stökkbreytist ekki þannig að hún ráði við gömlu mótefnin,“ segir Helgi.

Hann segir okkur mannfólkið einfaldlega vera í baráttu við öfl sem við ráðum ekki við: „Það þýðir ekkert að leggja þá ábyrgð á sóttvarnalækni eða heilbrigðisyfirvöld, að þau þekki framtíðina með fullkominni vissu, eða geti lofað okkur einhverjum skotheldum leiðum. Enda hafa þau aldrei nokkurn tíma þóst geta það. Þau munu, eðlilega, halda áfram að skipta um skoðanir eftir því sem ný gögn og ný reynsla koma fram. Enda fagfólk sem byggir ráðgjöf sína á vísindalegri aðferð, sem er - þrátt fyrir allt - það besta sem við höfum,“ segir Helgi.

Þá lokar hann pistlinum með því að ítreka að hann sé einfaldlega að vekja fólk til umhugsunar og höfða til dómgreindar hvers og eins.