Helgi Jóhannesson hætti sem yfirlögfræðingur Landsvirkjunar í lok október eftir að hafa fengið áminningu vegna hegðunar í starfi. Stundin greinir frá því í dag að hann hafi ítrekað kallað samstarfskonu sína „lessulega“ fyrir framan aðra starfsmenn, þá hafi hann króað hana af úti í horni og strokið henni um kinn.
Kjarninn greindi frá því í september að á síðustu fjórum árum hafi 11 tilvik komið upp er varða ásakanir um kynferðislega áreitni, áreiti eða ofbeldi hjá Landsvirkjun.
Þá hafi hann, einn æðstu stjórnenda Landsvirkjunar, beðið hana afsökunar og boðið henni að klípa sig í rassinn.
Konan vildi ekki ræða málið við Stundina. Helgi sendi eftirfarandi póst á samstarfsfólk sitt þegar hann hætti:
„Ég vil upplýsa ykkur um að ég hef af persónulegum ástæðum samið um starfslok hjá Landsvirkjun. Tíminn hér hefur verið mjög lærdómsríkur og ánægjulegur, en á sama tíma hef ég lent í óbærilegum áskorunum í einkalífinu.“
Stundin gekk á eftir honum varðandi skýringar og áminninguna, hann svaraði: „Ég vildi hætta hjá Landsvirkjun og óskaði eftir starfslokum. Meira er ekki um það að segja.“