Helgi Jóhannsson, svæfingalæknir í London, smitaðist af kórónuveirunni í mars síðastliðnum. Helgi er í viðtali í nýjasta tölublaði Læknablaðsins þar sem hann ræðir meðal annars um störf sín í London og kórónuveirufaraldurinn sem hefur haft talsverð áhrif á Bretlandseyjum.
Helgi segir að mars og aprílmánuðir hafi verið erfiðir og var opnuð 17 rúma gjörgæsludeild á PACU-deild St. Mary‘s-sjúkrahússins í Paddington.
„Í febrúar vorum við með allt að 16 rúm fyrir sjúklinga í öndunarvél, en í apríl voru þar 60 rúm! Við notuðum svæfingarvélar okkar og alla svæfingalækna í gjörgæslunni, nema þrjár skurðstofur fyrir neyðarskurð,“ segir Helgi en meðal skjólstæðinga var starfsfólk.
„Við sáum um starfsfólk okkar, einn hjúkrunarfræðing og eina konu sem var ræstitæknir sem við þekktum. Ég mun aldrei gleyma samtalinu við skyldfólk hennar þegar hún var nær dauða en lífi. Það var erfiðast held ég, að enginn gat heimsótt og við vorum fjölskylda þeirra á þeirra síðustu stundum. Við strukum þeim um hárið og grétum yfir andláti þeirra,“ segir hann.
Sem fyrr segir fékk Helgi sjálfur COVID-19 í mars síðastliðnum. Hann fékk höfuðverk, smá hósta og harðsperrur sem hann rakti til jógatíma skömmu áður. Á þriðja degi fór lyktarskynið en Helgi veiktist þó ekki alvarlega. Hann nálgast sitt fyrra form en lyktarskynið er fyrst núna að komast í samt horf.
Viðtalið við Helga má lesa í heild hér.