„Landsmenn eru orðnir dofnir gagnvart framkomu af þessu tagi,“ segir Helgi Magnússon, stjórnarformaður Torgs ehf., í grein sem birtist í Fréttablaðinu í dag. Torg ehf. á og rekur meðal annars Fréttablaðið og Hringbraut.
Í grein sinni fyrir Helgi um víðan völl og gagnrýnir meðal annars gegndarlausa útþenslu ríkisbáknsins. Hann segir að fyrir utan veiruvandann sem hrjáð hefur landsmenn undanfarna mánuði sé þessi útþensla helsta ógnin við íslenskt hagkerfi. Hann segir að vonandi séum við farin að sjá fyrir endann á veiruvandanum en ekkert bendi til þess að nokkurt lát verði á útþenslu ríkisbáknsins.
„Það er stórháskalegt og getur haft alvarlegar afleiðingar ef ekki verður hugarfarsbreyting meðal æðstu ráðamanna ríkisins. Hér er ekki verið að amast við því að ríkið verji auknum fjármunum til grunnþjónustu, sér í lagi heilbrigðiskerfisins. En ástæða er til að vara við óráðsíu og sóun víðs vegar í rekstri hins opinbera. Byrjum á toppnum,“ segir Helgi sem nefnir svo nokkur dæmi máli sínu til stuðnings.
Hann bendir á að stjórnmálaflokkarnir á Alþingi hafi til að mynda komið sér saman um að nær þrefalda framlög til sín sjálfra. Þannig eiga 728 milljónir króna á fjárlögum næsta árs að renna til rekstrar stjórnmálaflokkanna. Auk þess greiðir ríkissjóður laun 28 aðstoðarmanna þingflokkanna.
„Lengst gengur endaleysan á því sviði hjá þingflokki sem telur tvo þingmenn en hefur þrjá aðstoðarmenn á launum hjá skattgreiðendum! Umrætt fyrirkomulag er vitanlega galið og hreinn dónaskapur við eigendur ríkissjóðs, skattgreiðendur sem þurfa að borga brúsann. Það er raunar merkilegt hve litla athygli þessi framkoma stjórnmálaflokkanna vekur. Landsmenn eru orðnir dofnir gagnvart framkomu af þessu tagi.“
Helgi nefnir fleiri dæmi, til dæmis áform um að láta reisa fimm hæða glæsihýsi við hlið Alþingis sem á að hýsa kontóra fyrir þingmenn og starfsfólk Alþingis.
„Allt þetta fólk hefur ágæta vinnuaðstöðu og það ætti ekki að vera forgangsmál í því kreppuástandi sem ríkir á Íslandi að byggja slíkt monthús yfir skrifstofu Alþingis, að ekki sé nú talað um að ætla að troða 1.200 fermetra skrifstofubyggingu inn á lóð stjórnarráðshússins gamla og eyðileggja ásýnd þess, bara til að geta komið sívaxandi fjölda embættismanna ráðuneytisins fyrir. Enginn skortur er á vönduðu leiguhúsnæði í nágrenninu sem fá má á sífellt hagstæðari kjörum vegna aukins framboðs.“
Grein Helga má lesa í heild sinni á vef Fréttablaðsins.