Helgi fékk það óþvegið eftir pistil um Ingó veðurguð - Ein kveðja gladdi hann þó mjög

„Látum ekki netníðinga beygja okkur í duftið. Ég er sannfærður um að hinn þögli meirihluti vilji standa vörð um gildi siðaðs samfélags,“ segir Helgi Áss Grétarsson lögfræðingur í grein sem birtist á vef Vísis í morgun.

Helgi Áss skrifaði pistil á dögunum um mál tónlistarmannsins Ingólfs Þórarinssonar og kom honum til varnar. Í pistlinum, sem bar yfirskriftina Ég er Ingó Veðurguð, skrifaði hann meðal annars um McCarthyismann og viðraði þá skoðun sína að það ætti ekki að líðast að orðspor einstaklinga væri nítt niður á samfélagsmiðlum.

Í pistli sínum í dag skrifar Helgi meðal annars um viðbrögðin við pistlinum sem voru allavega ef marka má skrif hans.

„Um nokkurt skeið hefur mér sýnst það vera í tísku að starfrækja hópa þar sem meginþemað sé að einstaklingar innan hópsins séu fórnarlömb. Þessir hópar geta verið vel skipulagðir og í grunninn geta þeir staðið fyrir göfugum málstað, sem flestir, ef ekki allir styðja. Baráttuaðferðirnar geta á hinn bóginn borið keim af ofstæki, svo sem að í lagi sé að henda á grundvallarréttindum einstaklinga út um gluggann í því skyni að rétta hlut fórnarlamba,“ segir Helgi meðal annars og bætir við að hjarðhegðun sé smitandi. Svo virðist vera sem margar stoðir samfélagsins, atvinnulífið til dæmis, samþykki þá aðferð að dæma megi einstakling út frá einhliða og nafnlausum frásögnum, svipta hann mannorði, atvinnutækifærum og stuðla að samfélagslegri útskúfun viðkomandi.

„Svona nálgun getur ekki reynst vel þegar til lengri tíma er litið. Vælumenningin hlýtur fyrr eða síðar að éta börnin sín, rétt eins og aðrar byltingar.“

Um viðbrögðin við greininni segir Helgi að ófáir hafi ráðist fram á ritvöll samfélagsmiðla og andmælt viðhorfum hans.

„Offorsið í þeim viðbrögðum var fyrirsjáanlegt, t.d. gerði einn twittverjinn að því skóna að ég væri ógn við ungar stúlkur. Það næðir um þá sem standa gegn múgsefjun. Það gladdi mig á hinn bóginn að margir þökkuðu mér fyrir framlagið," segir Helgi og nefnir dæmi um kveðju sem gladdi hann sérstaklega. „Eina slíka kveðju fékk ég frá reynslumikium einstaklingi, sem ég þekki ekki neitt, en viðkomandi þakkaði mér m.a. fyrir að vera „rödd skynseminnar í baráttunni við skrímslavæðingu útilokunarmenningarinnar og múgsefjun“. Viðkomandi sagðist líða eins og nemanda í unglingadeild í grunnskóla sem væri meðvirkur áhorfandi að einelti.“

Helgi segir að boðskapur greinar sinnar sé þessi: „Munum eftir þeim kynslóðum sem á undan okkur komu og kölluðu ekki allt ömmu sína. Látum ekki netníðinga beygja okkur í duftið. Ég er sannfærður um að hinn þögli meirihluti vilji standa vörð um gildi siðaðs samfélags. Sýnum hugrekki og tjáum okkur til að verja þessi gildi.“