Tónlistarmaðurinn Helgi Björnsson mun vera í beinu streymi um verslunarmannahelgina, eitthvað sem landsmenn ættu að vera orðnir kunnugir eftir beinu streymin hans um helgar í Covid. Helgi mætti í viðtal á K100 þar sem hann fór létt yfir dagskrá helgarinnar og sagðist vera tilbúinn í slaginn að nýju.
„Það verður ekkert gefið eftir, hópurinn minn er orðin vel sjóaður í þessum útsendingum og nú ætlum við að toppa okkur með glæsilegri útsendingu,“ segir Helgi á K100
Það verður fullt hús af hæfileikum með Helga og Reiðmönnunum nú sem fyrr. „Við erum með frábæra gesti, söngvara sem allir elska en ekki bara það; það verða dansarar, sprengjur, besta veðrið og síðast en ekki síst þá verða allir sexí, allir,“ bætir Helgi við.
Streymið sameinar alla yfir Verslunarmannahelgina, því streymið næst „uppi á palli, inn í tjaldi og úti í skógi og vonandi skemmt' allir sér vel“.
Útsending verður frá Tjörninni og kvöldskemmtun Helga og Reiðmannanna er aðgengileg öllum.
Hægt er að lesa lengri útgáfu viðtalsins hér.