Helgi Björnsson, söngvarinn sem hefur sameinað þjóðina á síðustu vikum segir hugmyndina að sjónvarpsþáttunum Heima með Helga hafa kviknað vegna vandræða ítalskra vina í veirufaraldri síðustu vikna.
Hann hafi ásamt eiginkonu sinni, Vilborgu Halldórsdóttur, en þau skötuhjúin bjuggu um árabil á Ítalíu, horft á fólkið syðra fara út á svalir og syngja í einangrun þess og sóttkví á fyrstu dögum faraldursins í Evrópu – og þau hafi spurt sig, af hverju gerum við ekki eitthvað svona hérna heima á skerinu? Og svo hafi hann spurt strákana í bandinu sínu, Reiðmönnum vindanna, eftir gigg á Græna hattinum í febrúar hvort þeir væru ekki til, það væri enda byrjað að hægjast um hjá spilerís-mönnum vegna ástandsins – og þeir voru sko til.
Eftirleikinn þekkja menn, vinsælasta sjónvarpsefni landsmanna sem nýtur nú 70 prósenta áhorfs, takk fyrir, í línulegri dagskrá, er helsta andlega næring landsmanna um helgar þessar vikurnar. Og hann kveðst í einkar líflegu samtali sínu við Sigmund Erni í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld velja lög og listamenn hvers þáttar eftir líðan landsmanna hverju sinni, það sé kúnstin ásamt því að hafa þetta allt saman afslappað og ligeglade og ekkert alltof mikið undirbúið, en svona í restina; þetta með aspas-brauðið hafi nú bara verið fluga í huganum sem breyst hafi í brakandi gæs, þannig sé nú sjónvarpið, það trúi bara allir öllu sem þar sé sagt!