„Ég held að Sjálfstæðisflokkurinn eigi mörg sóknarfæri ef vel er haldið á spöðunum,“ segir Helgi Áss Grétarsson lögfræðingur sem var gestur Egils Helgasonar í Silfrinu á RÚV.
Þar lýsti Helgi, sem býður sig fram í stöðu ritara Sjálfstæðisflokksins, hugmyndum sínum um hvernig efla mætti flokkinn, meðal annars með því að virkja grasrótina. Sagðist Helgi telja að það væri hvergi meiri mannauður en í Sjálfstæðisflokknum.
Egill spurði Helga þá út í skoðanagrein þar sem Helgi talaði um að ríkisútgjöldin hefðu þanist allt of mikið út á vakt Sjálfstæðisflokksins.
„Ég tel mikilvægt að sjálfstæðisflokkurinn eigi að standa fyrir ákveðnum prinsippum. Það þýðir meðal annars það að hann á ekki að vera popúlískur eins og mér þykir mjög algengt í nútíma stjórnmálum. Það þýðir meðal annars að halda aftur af ríkisútgjöldum,“ sagði Helgi. „Aðalatriðið er að fólk sem styður Sjálfstæðisflokksins á að vera stolt af því. Það á að treysta grundvallastefnunni sem ég tel enga ástæðu til að kvika frá.“
Helgi sagði Sjálfstæðisflokkinn hafa verið ákveðna kjölfestu í íslenskum stjórnmálum með því að standa fyrir ákveðnum prinsippum og koma þeim í verk.
„Það er erfitt þegar flokkurinn hefur verið að minnka og er orðinn svona 20-25 prósent flokkur. Ég vil að hann sé nær 35 til 40 prósent eins og hann var.“
Egill benti þá á að Sjálfstæðisflokkurinn væri hluti af ríkisstjórn þar sem eðli málsins samkvæmt þyrfti oft að gefa heilmikið eftir í stefnumálum.
„Ég skil þann pólitíska veruleika. Það breytir því samt ekki að þarf að eiga sér stað meiri vinna innan flokksins svo það sé skilgreint fyrir hvað við stöndum og hvert við ætlum að fara.“