Lögfræðingurinn Helgi Áss Grétarsson gagnrýnir harðlega að nafngreindum einstaklingum sé sagt upp störfum í kjölfar ásakana á samfélagsmiðlum og að þegar hlaðvarpsstjórnandinn Edda Falak hafi óskað eftir frekari upplýsingum um mann þá feli það í sér hótun. Helgi Áss segir í grein á Vísi.is að tilgangurinn með hótun sé að ná fram markmiði án þess að framkvæmda hótunina sjálfa:
„Í alræðisríkjum er alþekkt að stjórnvöld ógna borgurunum til að halda andófi niðri án þess að þau grípi nauðsynlega alltaf til líkamlegs ofbeldis,“ segir hann.
„Það er mín skoðun að svokölluð „afturköllunarhreyfing“ nútímans beiti þessu vopni óspart, m.a. vegna þess að hreyfingunni hefur þegar tekist svo oft að útiloka annað fólk. Hótunin um slíka útilokun dugar því núna til að einstaklingur dragi sig í hlé af sjálfsdáðum, svo sem frá framboði, stjórnunarstöðu og annarri álíka samfélagsstöðu.“
Skal tekið fram að enginn hefur vikið eða sagt opinberlega vera að íhuga stöðu sína eftir að Edda kallaði eftir upplýsingunum um manninn ónafngreinda.
„Það hefur viðgengist um nokkurt skeið í íslensku samfélagi að einhliða frásagnir eru birtar á samfélagsmiðlum þar sem nafngreindir einstaklingar (eða svo gott sem) eru sakaðir um eitt og annað misjafnt, venjulega eitthvað sem tengist meintum kynlífsathöfnum eða kynferðisbrotum,“ segir Helgi.
Atvinnulífið hafi verið duglegt að senda hinn sakaða í frí eða segja viðkomandi upp störfum.
„Allt án þess að mál hins sakaða hafi farið eftir grundvallarreglum um réttláta málsmeðferð, t.d. er það sjaldnast svo að mál viðkomandi hafi verið rannsakað af lögreglu, enn síður að dómstóll hafi tekið afstöðu til málsins.“
Helgi Áss segir að beiðni Eddu hafi ekki mátt skilja öðruvísi en hótun um að upplýsa um vændiskaup mannsins. Helgi spyr svo nokkurra spurninga að lokum:
„Er það svona sem við viljum hafa samfélagið? Viljum við að Gróa á Leiti fái að vaxa og dafna? Viljum við að það sé sjálfsagt að einstaklingar út í bæ taki lögin í eigin hendur, leiti uppi meinta sakamenn og fjalli svo einhliða um málið á samfélagsmiðlum?“