Helgi Áss Grétarsson lögfræðingur líkir barátunni gegn kynferðisofbeldi í nútímanum við baráttuna gegn áhrifum kommúnismans í Bandaríkjunum á 5. og 6. áratug síðustu aldar, í grein sem birtist á Vísi í dag. Óhætt er að segja að greinin fari öfugt ofan í Twitter verja.
Í grein sinni, sem titluð er „Ég er Ingó Veðurguð“ ræðir Helgi Áss meðal annars McCarthy-ismann svokallaðan, nefndan eftir Joseph McCarthy öldungardeildarþingmanni. McCarthy yfirheyrði meinta kommúnisma í bandarísku sjónvarpi.
„Þótt McCarthy væri snjall í að koma fram þá voru flestar ásakanirnar, ef ekki allar, reistar á sandi. Sem betur fer tókst um síðir að fletta ofan af þessum vinnubrögðum og stöðva „nornaveiðarnar“ gegn kommúnismanum í Bandaríkjunum.“
Sjá einnig: Helgi áhyggjufullur: Fólk veit aldrei hvenær það verður skotmark
Helgi nefnir þar listamenn sem voru svartlistaðir líkt og Dalton Trumbo, handritshöfundur. Hann hafi síðar meir skrifað handrit undir ýmsum gervinöfnum. Setur Helgi það í samhengi við samtökin Öfgar og yfirlýsingu þeirra um Ingó Veðurguð.
„Hann bar af sér sakir en sl. mánudag var hann afturkallaður, eins og það er nefnt í útilokunarmenningunni, þ.e. hann mun ekki koma fram á Þjóðhátíð um verslunarmannahelgina. Enn einu sinni hafa þau öfl sigrað sem halda réttarhöld á samfélagsmiðlum og byggja sönnunarfærsluna á einhliða frásögnum sem eru svo gerð almenningi kunn með birtingu ásakana án þess nöfn séu birt. Viðkvæðið er þá, „þolendur skulda engum neitt.“
Að síðustu segir Helgi það lítilmannlegt að sitja hjá. lÖfgar við að uppræta eitt samfélagsmein réttlætir ekki að annað og verra mein sé fest í sessi. Látum ekki ofstækislið pólitískrar rétthugsunar halda áfram að taka hvern einstaklinginn úr umferð með aðferðum útilokunarmenningarinnar. Stöndum fyrir gildi siðaðs samfélags þar sem réttlát málsmeðferð er höfð að leiðarljósi og segjum:„Ég er Ingó Veðurguð.“
Sjá einnig: Helgi Seljan sendir sterk skilaboð til þeirra sem skrifa undir fyrir Ingó
„Ég er.....að fá heilablóðfall?“
Óhætt er að fullyrða að grein Helga vekji mikla athygli á samfélagsmiðlinum Twitter. Þar deilir pistlahöfundurinn Hrafn Jónsson skjáskoti af grein Helga.
„Hér er fullkomlega eðlileg byrjun á grein,“ skrifar Helgi og kaldhæðnin drýpur af. 150 manns bregðast við færslu Hrafns um greinina og deila henni ýmsir.
„Alexa, sýndu mér versta innleggið í umræðuna,“ skrifar einn. Grínistinn Villi Neto birtir skopmynd úr Simpsons.
Hörður í Macland bendir á að Helgi hafi líka tekið slaginn fyrir tónlistarmanninn Auð. „Hlustaði á það í Harmageddon og hef sjaldan heyrt jafn slæmar skoðanir,“ segir Hörður.
Fleiri tíst má sjá hér að neðan:
— Vilhelm Neto (@VilhelmNeto) July 7, 2021
Helgi tók líka bullets fyrir Auð. Hlustaði á það í Harmageddon og hef sjaldan heyrt jafn slæmar skoðanir
— Hörður Ágústsson (@horduragustsson) July 7, 2021
Allt nema sögulegar kvennkyns hetjur... hefði mátt henda inni einni konu bara upp á sýndarmennskuna.
— Davíð Halldór Lúðvíksson (@davidhalldor) July 7, 2021
Ég er ....... að fá heilablóðfall ?
— Dagur Hjartarson (@DagurHjartarson) July 7, 2021
jájá skulum ekkert pæla í hvað var að gerast á 5. áratugnum, allir vita að það var famously virðingarverður málstaður að berjast gegn kommúnisma á þeim tíma.
— Húmfreyr Sjókort 🦆 (@Sjomli) July 7, 2021
"Alexa, sýndu mér versta innleggið í umræðuna" https://t.co/ujcFrRQwRk
— Árni Björn Björnsson (@arnibjorn87) July 7, 2021
https://t.co/WlruNvyfPX pic.twitter.com/syoxmnD8mU
— Lóa Björk (@lillanlifestyle) July 7, 2021