Helgi Áss hjólar í Gísla Martein: „Tíst pólitískt rétt­hugsandi „smá­fugla“ þjónar þá ein­hverjum til­gangi“

Lög­fræðingurinn Helgi Áss Grétars­son, sem lenti í 7. Sæti í próf­kjöri Sjálf­stæðis­flokksins í Reykja­vík um helgina, segist þakk­látur fyrir þann stuðning sem hann fékk í borginni í aðsendri grein á Vísi.

„Öldruð kona kom í heim­sókn á kosninga­skrif­stofu mína sl. laugar­dag. Hana hafði ég aldrei hitt áður. Eigi að síður vildi hún kjósa mig í próf­kjöri Sjálf­stæðis­flokksins fyrir borgar­stjórnar­kosningarnar í vor. Tíma tók að skrá hana í flokkinn. Á meðan upp­lýsti hún mig um hvernig þjónusta Reykja­víkur­borgar hefði verið síðustu tvö ævi­ár maka hennar en hann féll frá fyrir fá­einum misserum síðan,“ skrifar Helgi.

„Vandi konunnar var raun­veru­legur. Slík við­fangs­efni vekja á­huga minn. Þau vil ég reyna leysa,“ bætir hann við áður en hann færir sig yfir í Gísla Martein.

„Á föstu­dags­kvöldum er skemmti­þáttur hjá Ríkis­sjón­varpinu. Um­sjónar­maður þess þáttar heldur úti tíst-reikningi (twitter-að­gangi). Við­komandi var eitt sinn borgar­full­trúi. Eitt­hvað virðist hafa farið fyrir brjóstið á þeim á­gæta manni að kjós­endur próf­kjörsins sl. helgi hafi í stríðum straumi séð á­stæðu til að greiða mér at­kvæði. Að minnsta kosti taldi fjöl­miðla­maðurinn á ríkismiðlinum á­stæðu til að endur­tísta fram­lagi konu sem lýsir sér sem „öfga­femín­istatussu sem hugsar ekki alltaf áður en hún talar“. Í því tíst­fram­lagi var sleginn hneykslunar­tónn yfir því at­kvæða­magni sem ég fékk í próf­kjörinu á­samt því að vísað var til vísis-greinar sem ég birti í júlí á síðasta ári,“ skrifar Helgi.

„Sú vísis-grein laut í grunninn að mikil­vægi þess að rétt­lát máls­með­ferð sé við­höfð þegar á­sakanir eru settar fram um refsi­verða eða sið­ferðis­lega vafa­sama hegðun nafn­greindra ein­stak­linga. Sá boð­skapur er sí­gildur og fellur vel að þeirri stjórn­mála­stefnu að taum­hald verður að vera á vald­beitingu gagn­vart þeim ein­stak­lingum sem sökum eru bornir. Horn­steinar siðaðs sam­fé­lags byggja á þessu grund­vallar­at­riði. Já­kvætt er að árangur minn í próf­kjöri Sjálf­stæðis­flokksins sl. helgi hafi endur­vakið at­hyglina á þessum boð­skap. Sem dæmi hefur áður­nefnd grein mín frá júlí 2021 verið mest lesna greinin á visir.is síðan sunnu­daginn 20. mars 2022.“

„Tíst pólitískt rétt­hugsandi „smá­fugla“ þjónar þá ein­hverjum til­gangi, eftir allt saman,“ bætir hann við.

Helgi segist hafa fundið fyrir miklum vel­vilja í sinna garð í próf­kjörs­bar­áttunni og að ó­fáir hafi lýst yfir sam­stöðu með skoðunum hans um dóm­stól götunnar.

„Ein­eltis­til­burðir net- og tíst­verja í málum þeim tengdum hræðir á hinn bóginn ófáa að tjá sig með þeim hætti sem ég hef gert. Jafn­vel þótt margir séu sam­mála mér.

Í kjör­klefanum hins vegar er enginn stóri bróðir gínandi yfir kjósandanum. Kjósandanum er t.d. frjálst að velja fram­bjóðanda sem er lík­legur til að leita lausna á raun­veru­legum vanda­málum venju­legs fólks.

Vald hins þögla meiri­hluta getur við það komið í ljós. Það sýndi sig um helgina. Fyrir þann stuðning verð ég ævi­varandi þakk­látur,“ skrifar Helgi.