Helgi Áss býður sig fram í Reykjavík – Á móti Borgarlínu og vill ráðast í niðurskurð

Lögfræðingurinn Helgi Áss Grétarsson sækist eftir 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Prófkjör flokksins fer fram í mars næstkomandi.

Helgi Áss hefur vakið mikla athygli að undanförnu fyrir gagnrýni sína á svokallaða slaufunarmenningu og kallað eftir því að fyrirtæki bregðist ekki við sögum af samfélagsmiðlum, það sé í verkahring dómstóla að skera úr um sekt manna. Hefur hann meðal annars komið Ingó Veðurguð til varnar í umræðunni.

Það er þó ekki aðalatriðið hjá honum fyrir kosningarnar, í grein sem hann skrifar í Morgunblaðið í dag segir hann að yfirbygging Reykjavíkurborgar sé allt of mikil og vill hann ráðast í niðurskurð:

„Draga þarf úr um­svif­um borg­ar­inn­ar sem lúta ekki að skyldu­verk­efn­um henn­ar. Lækka þarf skuld­ir svo að greiðslur vaxta og af­borg­ana séu ekki jafn­hátt hlut­fall af út­gjöld­um borg­ar­inn­ar eins og raun ber vitni í dag,“ segir hann.

„Sóun fylg­ir op­in­ber­um fram­kvæmd­um sem mis­lukk­ast. Kjörn­ir full­trú­ar eiga að tryggja fag­lega ferla til að koma í veg fyr­ir slíkt og fylgja þeim ferl­um eft­ir. Á þetta atriði vil ég leggja sér­staka áherslu.“

Helgi Áss er ekki hrifinn af Borgarlínu: „Eft­ir að hafa dval­ist lang­dvöl­um í stórri evr­ópskri borg er ég sann­færður um mik­il­vægi góðra al­menn­ings­sam­gangna. Á hinn bóg­inn tel ég að nú­ver­andi út­færsla á borg­ar­línu sé of dýr og ólík­leg til að ná þeim mark­miðum sem að er stefnt.“