Helgi Sigurður Haraldsson, forseti bæjarstjórnar í Árborg, hefur ákveðið að segja skilið við Framsóknarflokkinn eftir áratugasamband og tólf ára starf sem oddviti Framsóknarflokksins í sveitarfélaginu.
Helgi skrifaði grein sem birtist á vef Sunnlenska í gær og hefur vakið talsverða athygli. Í henni varpar hann ljósi á atburðarásina sem varð til þess að hann hætti.
Helgi segist hafa velt því fyrir sér í vetur hvort hann ætti að hætta eða halda áfram eitt kjörtímabil til viðbótar. Þegar stjórn Framsóknarfélags Árborgar ákvað að halda lokað prófkjör um efstu sæti listans fyrir kosningarnar í vor ákvað hann að taka slaginn og gefa kost á sér að leiða lista flokksins áfram.
„Með þátttöku í prófkjöri fengi ég einnig tækifæri á að fá mælingu á stöðu minni hjá Framsóknarmönnum í Árborg,“ segir Helgi og bætir svo við:
„En á þessum tímapunkti tók við einhver undarlegasta atburðarás sem ég hef upplifað í stjórnmálastarfi mínu um ævina. Á síðustu stundu var prófkjör flokksins blásið af og skýringin sem var gefin var að þátttakan hefði verið léleg. Þá var þeim sem þar ætluðu að taka þátt raðað í efstu sæti listans og það borið undir frambjóðendur og þeir samþykktu þá tilhögun. En næstu daga var slegið í og úr af stjórn félagsins varðandi framboðsmál flokksins og á endanum var mér tilkynnt af „sendiboða“ félagsins og flokksins að nærveru minnar væri ekki óskað til að leiða listann og framboðið í vor. „Ný“ Framsókn þyrfti nýtt fólk í framboð og undirritaður væri ekki söluvæn vara og tími til kominn að skipta honum út, fyrir yngra og ferskara fólk.“
Helgi segist hafa tilkynnt það opinberlega á þessum tímapunkti að hann væri hættur í sveitarstjórnarpólitík af persónulegum og öðrum ástæðum. Hann segir þó að vinnubrögðin sem viðhöfð voru til að „losna“ við hann hafi komið honum á óvart og valdið honum miklum vonbrigðum.
„Mínir flokksfélagar, fólkið sem ég treysti og er búin að vinna með síðustu ár gat ekki komið heiðarlega fram við mig, það er verulega sárt,“ segir Helgi í grein sinni og bætir við að með skrifum sínum vilji hann upplýsa þá sem komið hafa að máli við hann og aðra um ástæðu þess að hann er ekki í framboði.
„Ástæðan er fólk og forysta, sem gripu inn í lýðræðislegan hátt, sem valinn hafði verið til að velja fólk til framboðs í Árborg. Vegna þessa alls og þeirrar framkomu sem viðhöfð hefur verið i þessu máli er komið að því að leiðir mín og Framsóknarflokksins skilji eftir áratuga samband og hef ég því ákveðið að segja mig úr Framsóknarflokknum og upplýst skrifstofu hans og formann flokksins um þá ákvörðun mína. Megi öllu heiðarlegu fólki ganga sem best á þeirri vegferð sem það er.“