Helga Vala segir Eddu Falak að hætta: „Oft hefur þú skandaliserað en nú fórstu yfir strikið!“

Það má segja að áhrifavaldurinn og hlaðvarpsdrottingin Edda Falak hafi kveikt í internetinu í kvöld þegar hún lýsti eftirfarandi skoðun sinni:

„Bernessósa er næstum því viðbjóðslegri en remúlaði,“ sagði hún á Twitter og uppskar hneykslun aðdáenda bæði Béarnaise-sósu og remúlaðis.

Ólafur Örn Ólafsson, veitingamaður í miðbænum, spyr:

„Má bara EKKERT lengur?“

Edda svaraði:

„Það má t.d. tómatssósu.“

Reiður netverji sagði: „Ekki tala svona um remú,“ og var greinilega heitt í hamsi.

Edda sagði: „Já gul sósa með einhverjum klumpa lauk bitum..NAMM!“

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði Eddu að hætta:

„Nei nú hættir þú Edda Falak! Oft hefur þú skandaliserað en nú fórstu yfir strikið!“

Stefán Vigfússon grínisti notaði tækifærið til að slá á létta strengi:

„Við fengum viðvörun, við vorum vöruð því að cancel kúltur myndi ganga of langt, og sjá cancel kúltur hefur gengið of langt og engin getur verndað okkur fyrir því.“