Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, vandar Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, ekki kveðjurnar í ljósi þess að ráðherranum var óheimilt að setja Ásdísi Höllu Bragadóttur sem ráðuneytisstjóra til þriggja mánaða án auglýsingar.
„Enn á ný gerast ráðherrar í ríkisstjórn sekir um lögbrot, og þessi tiltekni ráðherra fær tvær hirtingar í einni og sömu vikunni, bæði þyrluflug í einkaerindum og ráðning án auglýsingar,“ segir Helga Vala, en fyrir rúmri viku fékk Áslaug bágt frá Ríkisendurskoðun fyrir að hafa notað þyrlu í einkaerindum. „Það held ég að hljóti að vera met, jafnvel hjá þessari ríkisstjórn sem hefur sett innanhúsmet í lögbrotum og öðrum ámælisverkum í stjórnartíð sinni.“
Helga Vala heldur áfram:
„Eitthvað segir mér að henni sé drull, eins og slétt er. Hún telur sig eiga þetta og mega þetta, rétt eins og formaður hennar og fóstbróðir sem og ráðherrann sem höfðaði mál gegn umsækjanda um ráðuneytisstjórastöðu sem var svo dregið tilbaka í vikunni eftir áralanga sneypuför ráðherrans og varaformanns framsóknarflokksins,“ segir hún og spyr: „Hver borgar? Nú við, skattgreiðendur og stjórnkerfið allt sem þarf að búa við þetta endalausa fúsk og virðingarleysi fyrir lögum og reglum.“