Bæði Friðjón Friðjónsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, furða sig á starfsauglýsingu heilbrigðisráðuneytisins fyrir nýjan forstjóra Landspítalans. Páll Matthíasson lét af störfum fyrr í þessum mánuði og verður á fullum launum út skipunartíma sinn næstu tvö og hálfa árið. Starfið er nú mannað öðrum stjórnanda Landspítala tímabundið.
Friðjón vekur athygli á því á Twitter að það sé aðeins 15 daga umsóknarfrestur en um er ræða yfirmannsstöðu yfir stærsta vinnustað á Íslandi.
„Það er fráleitt að auglýsa starf forstjóra LSH með 15 daga umsóknarfrest. Þetta er eitt viðamesta og flóknasta opinbera starf sem er til. Viljum við ekki fá umsækjendur?,“ spyr Friðjón.
Helga Vala, sem er sjaldan sammála Sjálfstæðismönnum, tekur undir með honum:
„Já, ég verð að vera þér innilega sammála. Líka vekur það alltaf tortryggni þegar auglýst er og umsóknarfrestur framlengdur.“
Friðjón skilur hversu stórt það er að þau séu sammála um annað en gengi Vals:
„Vó! Við sammála um eitthvað annað en dýrð Vals. Þetta er pólitískur jarðskjálfti!“
Rúnar nokkur spurði Friðjón: „Er þetta ekki umsóknarfrestur fyrir einn ákveðinn umsækjanda?“
Friðjón svaraði: „Veit ekki en mjög stuttir umsóknarfrestir eru tól þess sem ræður til að fækka umsækjendum.“
Gunnar nokkur kom svo með kenningu: „Það er væntanlega búið að ákveða hver fær starfið og því ekkert verið að sækjast eftir mörgum umsóknum.“