Helga Vala: Hvernig eiga mörg hundruð manns að rúmast þarna?

Helga Vala Helgadóttir, þingkona Samfylkingarinnar, klórar sér í kollinum yfir fréttum þess efnis að ferðamenn, sem kom frá löndum þar sem nýgengni smita er yfir tilteknum viðmiðum, skuldi dvelja í sóttvarnahúsi meðan á fimm daga sóttkví stendur.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að herða sóttvarnaráðstafanir á landamærunum eins og greint var frá í morgun. Börn sem fædd eru 2005 eða síðar þurfa að fara í sýnatöku á landamærum og fimm daga sóttkví og þá þurfa einstaklingar frá hááhættusvæðum að fara í farsóttahús nema þeir framvísi gildu bólusetningavottorði eða vottorði um fyrra smit.

Helga Vala bregst við þessum tíðindum á Facebook og segir: „Um þetta er það helst að segja að sóttvarnarlög heimila ekki slíka skyldu né sé ég að mörg hundruð manns eigi að rúmast í slíku enda öll Evrópuríki utan Íslands nú flokkuð sem áhætturíki að nokkru eða öllu leyti.“

Eiginmaður Helgu Völu, Grímur Atlason, spyr í athugasemd undir: „Af hverju þarf alltaf að vera fúsk?“ Grímur skrifaði kraftmikla færslu á Facebook-síðu sína í gær þar sem hann gagnrýndi stjórnvöld fyrir aðgerðirnar á landamærunum.

„Enn og aftur súpum við seyðið af þessu hálfkáki. Við höfum aldrei sett tappa í lekann en samt alltaf misíþyngjandi aðgerðir í gangi,“ sagði Grímur sem sendi eftirfarandi ákall:

„Gerum þetta einu sinni almennilega svo það sé hægt að njóta þeirra fríðinda að vera eyja. Frelsið kemur ekki með þessu hálfkáki. Það er annað hvort að gera þetta vel eða sleppa því og treysta því að fólk gæti sín sjálft.“

Helga Vala kallar eftir því undir eigin færslu að stjórnvöld komi fram með raunhæf markmið í þeirri óvissu sem nú er uppi, stilli væntingum í hóf og á hún þar við íbúa, ferðamanna og ferðaþjónustuaðila.

„Að við séum ekki að fara í massíva markaðsherferð sem kostar hundruð milljóna á sama tíma og lönd, eins og t.d. Bretland, eru að sekta íbúa fyrir að fara að tilefnisleysi úr landi. Tilefnisleysi er til dæmis frí. Þá finnst mér óvarlegt að tala um einhverja meðferð á fólki frá áhætturíkjum, eins og það séu sérstök ríki, en um er að ræða öll ríki Evrópu. Hvernig ætla stjórnvöld að hýsa alla þá sem koma frá þessum ríkjum?“

Helga Vala bendir svo á að sóttvarnalæknir, Þórólfur Guðnason, sem hún kveðst treysta vegna viðamikillar þekkingar hans á málinu, segi að eitt smit sé áhyggjuefni.

„Það sé áhyggjuefni hvernig fólk kýs að virða ekki reglur um sóttkví sem og það að þessi neikvæðu vottorð séu í raun ekki skotheldari en svo að þau mæla ekki ný smit auk þess sem blikur eru á lofti varðandi það hversu miklu mun veikari ungt fólk verði af þessu breska afbrigði. Loks velti ég líka fyrir mér varðandi bólusetningar og væntingastjórun þar. Talað var um að vera búin að bólusetja nærri 50 þ manns í lok mánaðar en raunin er að 5% er fullbólusett í dag, skv. síðu stjórnvalda.“