Helga Vala hrópaði á út­varpið sitt og sagði: „NÁ­KVÆM­LEGA“

„Þetta er bara svo rétt. Við þurfum við­horfs­breytingu gagn­vart geð­rænum á­skorunum,“ segir Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylkingarinnar, á Face­book-síðu sinni.

Þar vísar hún í við­tal við Héðinn Unn­steins­son, for­mann Geð­hjálpar, í fréttum RÚV um helgina. Héðinn sagði í við­talinu að stjórn­völd þyrftu að for­gangs­raða fjár­munum betur til geð­heil­brigðis­mála. Þá sagði hann á­hyggju­efni hversu mikil á­hersla er lögð á raskanir og öll okkar at­hygli fari í raskanir og ein­kenni þeirra.

„Það eru fleiri og fleiri sem hafa á­hyggjur af þessu, hvernig við árið 1883 erum með sex greiningar, í dag er þetta orðið 600,“ sagði hann og bætti við að feimni væri orðin fé­lags­fælni – allt sé orðið að ein­hvers­konar röskun.

„Auð­vitað erum við ekkert að segja að um­póla þessu aftur. Bara vekja at­hygli á því að þó að maður fái kvef þá er maður ekki kvef,“ sagði Héðinn í við­talinu við RÚV. Helga Vala var hrifin af þessum um­mælum Héðins.

„Ég hrópaði „NÁ­KVÆM­LEGA“ á út­varpið mitt í gær þegar ég hlustaði á Héðinn Unn­steins­son segja þessa setningu: „Þó að maður fái kvef þá er maður ekki kvef“. Þetta er bara svo rétt. Við þurfum við­horfs­breytingu gagn­vart geð­rænum á­skorunum,“ sagði þing­konan.