Helga Vala hjólar í Bjarna: „Það er vanda­samt að fara með vald. Það fer ykkur af­skap­lega illa“

„Það er vanda­samt að fara með vald. Það fer ykkur af­skap­lega illa og ég er ekki frá því að eftir því sem líður á kjör­tíma­bilið séuð þið æ meira að færa ykkur nær ein­ræði en lýð­ræði með vald­níðslu, sýndar­sam­ráði og ofsa­köstum.“

Þetta segir Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylkingarinnar, um svar Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra. Bjarni tjáði sig í morgun um mál Þor­valdar Gylfa­sonar en eins og kunnugt er lagðist efna­hags- og fjár­mála­ráðu­neytið gegn því að hann yrði ráðinn rit­stjóri nor­ræns hag­fræði­tíma­rits.

Bjarni skrifaði langa færslu um málið í morgun þar sem hann sagðist á engan hátt geta stutt sýn og á­herslur Þor­valdar. Tölvu­pósturinn, sem starfs­maður ráðu­neytisins sendi, hafa endur­speglað vilja hans þó hann hafi ekki vitað af til­nefningunni. „Ekki þarf að leggjast í mikla rann­sóknar­vinnu til að finna út hvaða hug Þor­valdur hefur borið til þeirra ríkis­stjórna sem ég hef setið í,“ sagði Bjarni meðal annars.

Helga Vala er mjög ó­sátt við á­kvörðun ráðu­neytisins og gagn­rýnir hún Bjarna harð­lega.

„Nei, Bjarni, vald­níðsla ykkar sjálf­stæðis­manna kemur mér ekkert á ó­vart en mig langar þó að benda á fá­eina hluti: Þetta fræði­rit er ekki gefið út til að styðja við stefnu­mótun fjár­mála­ráðu­neytisins á Ís­landi heldur fag­rit til upp­lýsinga - óháð stjórn­mála­flokkum og þeirra af­skiptum. Ég átta mig á því að það er þér og ykkur í Sjálf­stæðis­flokknum framandi, en það tíðkast víða um heim að óháð fag­rit séu gefin út, ekki til að þóknast hags­muna­öflum heldur til fag­legrar upp­lýsingar,“ segir Helga Vala meðal annars.

Kjarninn birti í morgun við­tal við Lars Calm­fors, prófessor við Stokk­hólms­há­skóla og fyrr­verandi rit­stjóra Nor­dic Econo­my Poli­cy Revi­ew. Lars mælti sjálfur með því að Þor­valdur yrði ráðinn rit­stjóri tíma­ritsins og segir hann að pólitískar skoðanir eða stjórn­mála­þátt­taka fræði­manna eigi ekki að hafa á­hrif á fram­gang þeirra í akademísk störf.