Helga Vala: „Ég lít upp, sé hann og lamast“

Helga Vala Helga­dóttir, lög­maður og þing­maður Sam­fylkingarinnar, segir að lög­regla og dómarar landsins verði að gera sér betur grein fyrir því hvaða á­hrif á­rásir hafa á þol­endur.

Helga Vala er í á­huga­verðu við­tali í helgar­blaði Frétta­blaðsins þar sem hún segir meðal annars frá at­viki sem hafði mikil á­hrif á hana. Hún var 17 ára þegar hún varð fyrir líkams­á­rás eldri manns í mið­borg Reykja­víkur. Helga Vala var þá að skemmta sér með kærasta sínum sem hafði brugðið sér frá

„Ég var ein í Austur­strætinu þegar eldri maður kemur og vill fá að draga mig eitt­hvað af­síðis,“ segir hún í við­talinu og bætir við að hún hafi sagt við manninn að hún væri ekki að fara neitt með honum og bað hann að láta sig í friði.

„Þá kýldi hann mig með hnefanum í and­litið þannig að ég bæði nef­brotnaði og skaddaðist á kinn­beini.“

Í við­talinu lýsir Helga Vala þeim von­brigðum sem hún varð fyrir með það hvernig tekið var á málinu. Hún gat ekki lagt fram kæru án þess að vita nafn á­rásar­mannsins og þegar hann loks fannst sagði maðurinn lög­reglunni að hann glímdi við veikindi og var málið látið niður falla.

„Ég var alveg í klessu og fékk engan stuðning frá kerfinu. Þetta hafði mikil á­hrif á mig, bæði hvað varðar námið og öryggis­leysið,“ segir hún og bætir við að á­rásin hafi blundað í með­vitund hennar ára­tugum seinna þegar hún mætti á­rásar­manni sínum í strætis­vagna­skýli í mið­borginni.

„Ég var þá orðin lög­maður og var að skoða eitt­hvað í símanum mínum, þegar ég finn að maður stendur fyrir framan mig. Ég lít upp, sé hann og lamast,“ segir hún. Maðurinn var orðinn gamall og veik­byggður og hefði ekki getað unnið Helgu Völu mein. En það var nóg fyrir hana að sjá manninn.

„Ég kom mér út úr strætó­skýlinu og þangað sem ég sá að var fólk. Þá hringdi ég í Grím, há­grét og kom varla upp orði.“

Í við­talinu segir Helga Vala að lög­reglu­menn og dómarar verði að gera sér grein fyrir því hvaða á­hrif líkams­á­rásir hafa á þol­endur þeirra.

„Það er búið að svipta mann­eskju öryggi. Í þessu til­viki var um blá­ó­kunnugan mann að ræða, en oftar en ekki gerist þetta inni á heimilum,“ segir og bætir við að staðan í dag sé betri en hún var fyrir þrjá­tíu árum. Í kerfinu sé margt hæft fólk sem tekur á of­beldis­málum. „En of oft kemur það samt fyrir að þol­endur mæti skilnings­leysi.“

Í viðtalinu ræðir Helga Vala einnig um æskuárin, árin í leiklistinni, lögfræðina og þingmennskuna svo fátt eitt sé nefnt. Viðtalið má nálgast hér í heild sinni.