Helga Vala birtir skopmynd af Bjarna og Sjálfstæðisflokknum

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, gefur lítið fyrir slagorð Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningarnar. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, talaði meðal annars um það í kynningarmyndböndum Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningarnar að hann vildi báknið burt.

„Flokknum sem í auglýsingum sínum fyrir kosningar berst fyrir minnkandi bákni er nú að takast að fjölga enn frekar ráðherrum í ríkisstjórn Íslands bara til að tryggja fleiri stóla fyrir fleiri gæðinga,“ segir Helga Vala á Facebook-síðu sinni og birtir meðfylgjandi mynd eftir skopmyndateikningarann Halldór Baldursson frá árinu 2019.

Helga Vala heldur áfram:

„Þegar Sjálfstæðisflokkur tók við stjórnartaumum árið 2013 voru ráðherrar 8 en eru nú 11 og bráðum amk 12 eða fleiri en það á nú eftir að koma í ljós. Þessi stólafjölgun er langt í frá til hagræðingar enda þarf frekar að fækka sílóum í ríkisstjórn til að auka hagræði, skilvirkni og samtal á milli til hagsbóta fyrir almenning. Þá kostar þessi stólaleikur auðvitað umtalsverða fjármuni sem við, skattgreiðendur fáum að borga. Minni á að íbúar sem standa undir þessum kostnaði eru 370 þúsund.“