„Þingmennska getur verið bráðskemmtilegt, fræðandi og gefandi starf en svona hlutverk smjörgerðarmanns þingflokks hlýtur að vera óbærilegt,“ segir Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Helga Vala svaraði Brynjari fullum hálsi á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi, en fyrr um daginn hafði Brynjar sent henni og Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, þingmanni Pírata, eitraða pillu. Sagði Brynjar að þær hefðu lítið sem ekkert fram að færa í pólitík.
Brynjar var óánægður með að þær skyldu reyna að „skapa upplausn“ vegna heimsóknar Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra í Ásmundarsal á Þorláksmessu þar sem sóttvarnareglur voru brotnar.
Helga Vala svarar Brynjari fullum hálsi og birtir mynd af smjörklípu máli sínu til stuðnings.
„Hugur minn er hjá þeim þingmanni sem hefur það eina hlutverk að búa til smjörklípu í hvert sinn sem flokkur hans og formaður eru í djúpstæðum persónulegum og/eða pólitískum vanda. Þingmennska getur verið bráðskemmtilegt, fræðandi og gefandi starf en svona hlutverk smjörgerðarmanns þingflokks hlýtur að vera óbærilegt. Það er því engin furða að umræddur þingmaður sé ýmist þreyttur, sofandi eða nývaknaður þegar hann birtist okkur,“ segir hún en myndin sem hún birti var þessi hér:
Hugur minn er hjá þeim þingmanni sem hefur það eina hlutverk að búa til smjörklípu í hvert sinn sem flokkur hans og...
Posted by Helga Vala Helgadóttir on Sunnudagur, 27. desember 2020