Helga Vala: „17-0 – Takk Sjálf­stæðis­flokkur“

„17-0 - Takk Sjálf­stæðis­flokkur. Nú er að sjá dóminn og hvað verður um dómarana 15,“ segir Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylkingarinnar, á Face­book-síðu sinni.

Helga Vala deilir þar frétt Frétta­blaðsins sem greindi frá því nú á ellefta tímanum að yfir­deild Mann­réttinda­dóm­stóls Evrópu hefði stað­fest dóm réttarins í Lands­réttar­málinu svo­kallaða sem kveðinn var upp í mars í fyrra. Dómurinn var skipaður sau­tján dómurum og var hann ein­róma um niður­stöðuna.

Með því að skipa ekki dómara við Lands­rétt í sam­ræmi við lands­lög braut ís­lenska ríkið í bága við á­kvæði Mann­réttinda­sátt­málans um rétt­láta máls­með­ferð.

Daginn eftir að dómur féll í Lands­réttar­málinu þann 12. mars í fyrra á­kvað Sig­ríður Á. Ander­sen að stíga til hliðar sem dóms­mála­ráð­herra. Snerist málið um það hvernig staðið var að skipun fimm­tán dómara við Lands­rétt í júní 2017.

Að mati dómsins gerðist dóms­mála­ráð­herra brot­legur við reglur sem giltu um skipun dómara með því að taka fjögur dómara­efni af lista hæfnis­nefndar og setja önnur dómara­efni í staðinn, án þess að leggja mat á eða afla frekari gagna um reynslu þeirra sem fjar­lægðir voru.

Hér að neðan má sjá viðbrögð nokkurra þingmanna við tíðindunum: