Helga Margrét Marzellíusardóttir, listakona og kórstjóri sem býður sig fram í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir Dag B. Eggertsson, borgarstjóra í Reykjavík ekki lengur geta lofað því að ætla að laga leikskólamálin í borginni á næsta kjörtímabili.
„Í áratugi hafa atvinnustjórnmálamenn talið okkur trú um að leikskólamál séu A) ekki vandamál, B) ekki þeirra vandamál eða C) sé vandamál, en verði lagað strax á næsta kjörtímabili,“ skrifar Helga í aðsendri grein áVísi.
„Dagur B. Eggertsson ber hér höfuð og herðar yfir aðra, en botninn tók gjörsamlega úr í nýliðinni viku þegar borgarstjóri til átta ára og borgarstjórnarfulltrúi Samfylkingarinnar til tuttugu ára, valdi að keyra á atriði C fyrir þessar kosningar. Reyndar átti það ekki að koma neinum á óvart að hann færi þá leið, enda búinn að reyna bæði A og B.“
Hún rifjar upp þegar Dagur og Hildur Björnsdóttir sátu fyrir svörum í Kastljósþætti í nóvember og segir að þar mátti sjá nýja hliða á borgarstjóra „sem venjulega tekst með pólitískum klækjabrögðum að stýra umræðunni sér í hag og koma sér undan erfiðum spurningum.“
„Þegar Hildur bar upp á hann tölur sem hún hafði fengið frá starfsmönnum Reykjavíkurborgar um meðalaldur leikskólabarna við innritun hljóp Dagur fyrst í B með því að segja að þetta væri vandamál víðar en í Reykjavík, áður en hann hljóp svo lóðbeint í A aftur, þegar hann sagði að aldurinn sem Hildur vísaði til væri ekki alveg réttur, og þar með væri málið ekki lengur vandamál.“
„Þessi málflutningur borgarstjóra er aumkunarverður. Fyrir liggur að borgarbúar, ungt fólk sem með réttu ættu að vera að skjóta niður rótum í hverfum borgarinnar og koma börnum sínum fyrir í leikskóla, tónlistarskóla, grunnskóla, eru þess heldur að flýja yfir til nágrannasveitarfélagana.“
Á meðan á þessum flótta stendur kemst núverandi meirihluti með Dag í fararbroddi upp með að láta eins og hér sé ekkert vandamál, bætir Helga Margrét við en hægt er að lesa grein hennar hér.