Helga Braga skilur ekki hreindýraveiði: „Af hverju þarf að drepa þessi fallegu, blásaklausu dýr?“

Helga Braga Jónsdóttir, leikkona, uppistandari og dýravinur, á erfitt með að skilja hvers vegna nauðsynlegt er að leyfa veiðar á hreindýrum hér á landi.

„Ég skil ekki þessa hreindýraveiði, afhverju þarf að drepa þessi fallegu, blásaklausu dýr og jafnvel taka mynd af sér með líkinu af þeim,“ spurði Helga Braga á Twitter-síðu sinni í gærkvöldi.

Miðað við viðbrögðin á færslu Helgu virðast margir taka undir með henni.

Hreindýraveiðar njóta töluverðra vinsælda meðal hóps fólks á Íslandi en á þessu ári er heimiluð veiði á 1.021 dýri. Mun færri fengu leyfi en vildu því um 3.300 umsóknir bárust til Umhverfisstofnunar.