Helga biður skilnaðar­for­eldra að varast þessi orð um jólin: „Geta verið skað­leg fyrir barn í þessum að­stæðum“

Helga Þóra Helga­dóttir, sem titlar sig sem móðir í grein á Vísi, skrifar um mikil­vægi þess að fara með rétt mál þegar um skilnaðar­börn eru að ræða.

„Jólin eru há­tíð barnanna“ er hug­tak sem ég tengdi lítið við þangað til ég eignaðist mitt fyrsta barn. Þegar hún var ekki orðin tveggja ára skildu leiðir mín og pabba hennar. Til­veran fyrir „skilnaðar­barn” er ekki ein­föld. Tvö heimili, tvær fjöl­skyldur, tengsla­brýr til þess að mynda upp á nýtt í hverri viku og síðan rjúfa þær í þeirri næstu. Færa sínar stoðir og traust á milli ein­stak­linga,“ skrifar Helga á Vísir.

„Í mínum eyrum hljómar þetta eins og stórt verk­efni fyrir lítið barn. Lítil orð eins og ég sakna þín geta verið skað­leg fyrir barn í þessum að­stæðum að heyra. Það stimplar inn sam­visku­biti hjá þeim að láta for­eldrið hafa gengið í gegnum söknuð af því þau voru ekki hjá þeim, sem­sagt þeim að kenna,“ bætir Helga við.

„Sama gildir um enda­laus sím­töl til og frá, það hefur á­hrif á tengsla­brúnna sem þau þurfa að mynda sér við sitt­hvort for­eldrið. Sér­stak­lega á yngri árum þegar þau hafa ekki enn full­komin skilning á þessu. Það getur gert verra frekar enn betra. Það er margt í þessu ferli sem krefst lær­dóms for­eldra og við barns­faðir minn höfum lukku­lega verið sam­stíga frá degi eitt. Það vorum við sem á­kváðum að slíta sam­bandi, ekki barnið okkar. Það er því okkar verk­efni að gera hennar til­veru í flóknum að­stæðum sem besta.“

„Jól og ára­mót geta verið erfiður tími fyrir fjöl­skyldur í þessum að­stæðum. Litla ljósið mitt er núna komin til kanarý með pabba sínum og hans stór­fjöl­skyldu yfir jól og ára­mót. Hversu dá­sam­legt fyrir hana að upp­lifa? Ég mun lík­lega gráta úr mér augun á að­fanga­dag enn það er ekki hennar mál. Alveg eins þegar hún fór, ég rétt hélt niðri tárunum þangað til hún fór útum hurðina. Mín sorg og söknuður er ekki fyrir hana að hafa á sam­viskunni. Hvað þá þegar hún er á leiðinni í drauma sólar­landa­ferð með yndis­legri föður­fjöl­skyldunni sinni. Við pabbi hennar erum ekki heppinn með okkar sam­vinnu og sam­stöðu í dag. Við höfum þurft að vinna fyrir henni, lesa okkur til, læra og ræða mikið saman til þess að skapa okkur öllum þetta um­hverfi. Það má vera að við höfum á­gæta til­finninga­greind enn sam­skipti og sam­vinna skipta bara öllu máli, barnsins vegna. Við erum einungis sam­mála um eitt og það er koma barninu okkar til manns og veita henni á­hyggju­lausa til­veru í þessu öllu saman. Ég myndi í grunninn halda að það væri mark­mið allra for­eldra.“

„Jólin eru há­tíð barnanna, þau eru van­svefta af spenning yfir öllu þessu ævin­týri. Leyfum þeim að eiga þessa gleði ó­spillta. Án sam­visku­bits eða á­hyggjum for­eldra sinna, hvort þau verði ein og án þeirra. Þau eiga ekki að hafa neitt slíkt á sam­viskunni. Hugsum um þau og vöndum okkur, í einu og öllu.

Stöndum saman þó við séum í sundur. Gleðileg jól!“ skrifar Helga Þóra að lokum.