Grænmetissprettur er eitthvað sem þau hjónin Stefán Karl heitinn leikara og Steinunn Ólína hófu að rækta árið 2015. Ræktunin var hugarfóstur Stefáns og varð hann senn heltekinn af henni. Hann keypti gamla frystigáma sem Steinunn Ólína notar núna en vandasamt er að rækta; plönturnar eru af margvíslegum toga og ströng ákveðin skilyrði varðandi birtu vindstig og loftgæði.
Ingunn Lára Kristjánsdóttir heimsótti Steinunni Ólínu út á Granda í Reykjavík þar sem ræktunin fer fram. Þar hefur nú verið komið upp fullkomnu vistkerfi fyrir plöntunar, eftir óteljandi mistök við þróunina að sögn Steinu. Það hefur nú skilaði af sér afurðum sem eru seldar undir nafninu Spretta og mest til veitingastaða en líka til einstaklinga á laugardögum þegar opið er á Grandanum á bak við verbúð nr.77.
Viðtalið var birt í þættinum 21 á Hringbraut á fimmtudagskvöldinu 25.júní 2020. Þáttinn má sjá hér í heild og viðtalið í seinni hlutar hans: