Hitinn á Hallormsstað mældist 29,3 gráður klukkan 13:20 og er þetta hæsti hiti sem mælst hefur hér á landi í heil þrettán ár. Það sætir tíðindum þegar svona hár hiti mælist á Íslandi og þá þykir óvenjulegt að svona hár hiti mælist svo seint í ágústmánuði.
„Þetta er hitamet ágústmánaðar og hæsti hitinn sem hefur mælst á landinu síðan í hitabylgjunni í júlí 2008. Það eru þrettán ár,“ hefur Fréttablaðið eftir Teiti Arasyni, veðurfræðingi á Veðurstofunni.
Það er áhugavert að bera saman hitann á Hallormsstað við hitann á vinsælum ferðamannastöðum fyrir sem Íslendingar kannast við. Á suðurhluta Tenerife mældist hitinn um svipað leyti 27 gráður og í Kaupmannahöfn var ekki nema 18 stiga hiti. Í London mældust 23 gráður, 24 gráður í París, 28 gráður í Mílanó og 27 gráður í Barcelona svo eitthvað sé nefnt.