Heitar um­ræður um ræðu Björns Levís: „Ég finn eigin­lega ekki orð til að lýsa því hversu ó­smekk­legur mér finnst sá saman­burður“

Sér­stök um­ræða um konur í Íran fór fram á Al­þingi í gær og vakti ræða Björn Levís Gunnars­sonar heldur betur at­hygli. Í ræðunni líkti Björn Leví bar­áttu kvennanna við mót­þróa sinn við fylgja fata­reglum Al­þingis. Fjölmargar konur hafa verið myrtar af lögreglu og klerkastjórn Íran á síðustu vikum fyrir það eitt að sýna á sér hárið.

Björn Leví vildi einnig meina að vest­ræn stjórn­völd bæru á­byrgð á á­standinu í Íran og líkti „stjórn­lyndi“ Al­þingis við klerka­stjórninni Íran.

„Konur í Íran berjast fyrir lífi sínu og til­veru­rétti, hætta lífi sínu í þeirri bar­áttu. Björn Leví líkir því í um­ræðum á Al­þingi við mót­þróa sinn við fata­reglur á vinnu­staðnum – eitt­hvað jakka og sokkaröfl,“ skrifar Guð­mundur Andri Thors­son, fyrr­verandi þing­maður og rit­höfundur. „Ég finn eigin­lega ekki orð til að lýsa því hversu ó­smekk­legur mér finnst sá saman­burður,“ bætir hann við.

Fjöl­margir taka til máls undir þræði Guð­mundar og segir Þórunn Svein­bjarnar­dóttir, þing­maður Sam­fylkingar, að hún eigi ekki orð yfir þessum um­mælum Björns.

Illugi Jökuls­son segir að þetta sé lík­legast ekki illa meint en „þetta var samt frekar illa heppnað og þannig var það nú bara. Það má líka alveg benda á það,“ segir Illugi.

Björn Leví á­kvað að reyna að svara sem flestum í at­huga­semdum en fólk var ekki að taka í út­skýringar hans. Hann fann þó stuðning í Ei­ríki Jóns­syni sem segir að þetta sé alveg rétt hjá Birni Leví. „Að skikka fólk til að klæðast á­kveðinn hátt líkt og þing­menn láta yfir sig ganga er fé­lags­leg of­beldi. Allir með háls­bindi? Allar með slæður? Hvort sem það er í Íran eða á Al­þingi.

Guð­mundur svarar Ei­ríki og segir að munurinn sé sá að þing­salurinn sé af­markað rými og sér­stakt þar sem lög landsins eru á­kveðinn.