Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás sem beindist gegn dyraverði á Ölstofu Kormáks og Skjaldar aðfaranótt 3. febrúar 2019.
Maðurinn var ákærður fyrir að bíta dyravörðinn í vinstri upphandlegg með þeim afleiðingum að sár kom á vinstri upphandlegg. Maðurinn neitaði sök fyrir dómi en viðurkenndi þó að hafa „nartað“ í hann. Það væri af og frá að hann hefði læst tönnunum í handlegg dyravarðarins eins og lýst var.
Dyraverðir höfðu afskipti af manninum að því er virðist vegna þess að hann var sofandi inni á staðnum auk þess sem kvartað hefði verið undan honum. Er hann sagður hafa snöggreiðst þegar dyraverðir höfðu afskipti af honum og reyndu að vísa honum út af staðnum.
Maðurinn sem var ákærður þvertók fyrir að hafa verið sofandi. Hann hafi reynt að rökræða við dyraverði staðarins um hvers vegna hann ætti að fara en ekki fengið fullnægjandi skýringar. Þegar dyravörður hafi rifið um axlir hans, dregið hann upp og byrjað að ýta honum út hafi hann streist á móti. Fleiri dyraverðir hefðu komið að og hann brugðist við með því að „narta“ í einn þeirra. Í raun hafi verið um neyðarvörn að ræða.
Dómari taldi að ákæruvaldinu hefði tekist að færa lögfulla sönnun fyrir því að maðurinn hefði bitið dyravörðinn eins og greinir í ákæru.
Fangelsisdómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára en auk þess var manninum gert að greiða dyraverðinum 200 þúsund krónur. Þá var honum gert að greiða allan sakarkostnað málsins til ríkissjóðs, þar með talin laun verjanda síns, 1,2 milljónir, þóknum verjanda síns á rannsóknarstigi, 90 þúsund krónur, og rúmar 43 þúsund krónur í annan sakarkostnað.
Samtals þarf hann því að greiða rétt rúma eina og hálfa milljón króna.