Heimir sótillur: „Hvað er eigin­lega að?“ – Hvað finnst þér?

„Þú skalt borga 500 þúsund kall ef þú vilt rækta bleikju á þínu landi til að borða sjálfur, 17 þúsund á ári ef þú vilt hafa hund hjá þér, meira í fast­eigna­skatt af því að ná­granninn þinn seldi svo vel og mátt ALLS EKKI færa lög­heimilið þitt í heils­árs­húsið þitt og svo mætti lengi telja.“

Þetta segir Heimir Karls­son þátta­stjórnandi á Bylgjunni og bætir við:

„Hvað er eigin­lega að? Er hið opin­bera að gera ALLT til þess að gera okkur lífið leitt?“ Heimir segir að Ís­land eigi að vera þægi­legt land að búa í. Heimir segir að á­standið sé öllum flokkum að kenna en lík­lega sé sökin mest Sjálf­stæðis­manna. Heimir segir:

„Hér á okkur að geta liðið vel. En mér sýnist að stundum sé það mark­mið ríkis og sveitar­fé­laga, ekki síst opin­berra stofnanna, að gera lífið eins erfitt og þungt hér og mögu­legt er. Hvað finnst þér?“