Heimir segir ekkert neyðarástand: „Samfélagsleg handbremsa er hætt að bíta á pestina“

Heimir Hannesson, blaðamaður DV, fer mikinn í grein á vefnum í dag. Þar segir hann ekkert neyðarástand vera í gangi vegna Covid-faraldursins hér á landi og það að Almannavarnir séu á neyðarstigi dragi úr tiltrú almennings.

„Í tvö ár, með hléum þó, hefur neyðarástand staðið yfir á Íslandi vegna Covid. Raunveruleikinn er auðvitað sá að hér er engin neyð og fráleitt að flokka Covid ástandið hérna með mannskæðu flugslysi, eldgosi í þéttbýli eða skriðum á Austfjörðum,“ segir Heimir.

Nefnir hann sem dæmi Veðurstofuna sem flokki ekki hvaða veður sem er sem appelsínugula viðvörun. „Ekkert úlfur-úlfur vesen á þeim bænum,“ segir hann. „Hið íslenska Covid er neyðarástandið sem varð aldrei að ástandi. Úlfurinn er alltaf á leiðinni.“

Bendir hann á að einn af átta þúsund sem eru í eftirliti Covid göngudeildarinnar væri rauðmerktur. „Að vera rauðmerktur þýðir að það þurfi kannski að leggja þig inn. Núll komma núll eitt prósent. 0.01%. Kannski,“ segir hann. „Þeim sem liggja inni á Landspítalanum með Covid fækkaði í gær. Fóru úr 46 í fyrradag í 39 í gær. Færri en í svínaflensunni 2009. Þrír voru í gær á gjörgæslu. Sjö daginn áður.“

Hann segir samkomutakmarkanir hættar að virka. „Undralyf Þórólfs við Covid: Samfélagsleg handbremsa, er hætt að bíta á pestina.

Nú er mál að linni. Nú er tíminn.“