Heimir Már Pétursson, fréttamaður og einn stofnandi Hinsegin daga, virðist ekki par sáttur við ummæli Harðar Torfasonar, stofnanda Samtakanna ´78, í viðtali við Fréttablaðið um að hann hafi verið hundsaður af Hinsegin dögum en í umræddu viðtali sagðist Hörður hafa fengið þau skilaboð um að ekki hafi verið pláss fyrir hann á hátíðinni.
Í bréfi til Fréttablaðsins í dag segir Heimir aftur á móti að Hörður hafi ekki verið með því honum hafi ekki fundist Hinsegin dagar vera merkilegir.
„Við sem stofnuðum Hinsegin daga í Reykjavík - Gay Pride, litum hins vegar alltaf þannig á að við hér á Íslandi tilheyrðum alþjóðlegri hreyfingu sem skilað hefði baráttu okkar og réttindum áfram með gleðina að vopni. Þess vegna kölluðum við göngu okkar Gleðigönguna en ekki Fýlugönguna, Kröfugönguna eða Mótmælagönguna. Gleðin og sýnileikinn eru nefnilega pólitík líka og beitt vopn gegn fordómum og ofsóknum,“ segir Heimir Már.
Hörður sagði í viðtalinu að honum hafi þótt leiðinlegt að vera ekki með og sagðist hafa farið fram á það. „Ég var ekkert endilega sár en þótti það furðulegt, að þetta væri gert svona. Af hverju manni sem byrjaði þessa baráttu og er eitt þekktasta söngvaskáld þjóðarinnar, af hverju ég fengi ekki að vera með,“ sagði Hörður.
Að sögn Heimis óskaði Hörður aldrei eftir því að taka þátt og eina skiptið sem hann gerði það var árið 2003 þegar óskað var sérstaklega eftir þátttöku hans. „Honum hefði verið velkomið eins og öllum öðrum að setja upp tónleika í tengslum við hátíðina og óska eftir því að þeir væru hluti af henni en það gerði hann aldrei,“ segir Heimir.
„Við vildum og vorum stolt af sigrum okkar fólks um allan heim í gegnum árin. Fögnuðum þeim með gleði og sýnileika um leið og við minntumst þeirra sem féllu í baráttunni og lýstum stuðningi við bræður okkar og systur í öðrum löndum sem voru ofsótt, fangelsuð og pyntuð. Hörður stóð uppi teinréttur eftir sína baráttu sem Hinsegin dagar í Reykjavík - Gay Pride hafa margsinnis þakkað honum fyrir. Hann á því að vera stoltur en ekki súrt fórnarlamb.“