Heimir Karlsson þekkja flestir úr þættinum Í bítið á Bylgjunni, varpaði fram spurningunni á Facebook- síðu sinni og hefur fengið vægast sagt góð viðbrögð við henni. Svarendur eru þó ekki allir sammála um hvað er hægt að gera í málinu.
„Spurning:
Er ekki sjálfsögð krafa að greiða hverjum þeim, sem vinnur 100% vinnu, slík laun að viðkomandi geti lifað af þeim sómasamlegu lífi?
Ef atvinnurekendur telja sig ekki geta það, þá þarf að laga það umhverfi sem þeim er skapað. Til þess höfum við stjórnmálamenn!“ skrifaði Heimir í gær.
Allir virðast sammála um að fólk eigi skilið að fá góð laun fyrir 100% vinnu en fólk hefur minni trú á stjórnmálamönnum.
„Hluti af vandamálinu eru stjórnmálamenn. Td himinhá tryggingargjöld og allskyns ríkis álögur,“ skrifar Sigurður Hlöðversson.
„Megnið af okkar stjórnmála konum/mönnum eru óhæf til flestra verka, það eru allir uppteknir af einum manni sem þorði og hatast nú út í hann, keep on trucking,“ segir Lúðvík Matthíasson.
„Heimir minn tryggingargjaldið er að sliga atvinnurekendur. Hvað sögðu veitingar menn nýlega, það er ekki hægt að reka matsölustaði lengur og þeir verði að hækka verð. Síðan er það misskipting valds, Af hverju skyldi það gerast? Síðan er það einn hlutur og mun verða vandamál síðar. Það þegar atvinnurekendur flytja hér inn láglaunafólk á smánarlaunum, þá verður samkeppni á milli fólks. Þetta er stórt vanda mál hjá farmönnum á farskipum í tugi ára. Þeir eru fleirri mánuði um borð og komast ekki frá skipi. ITF hefur verið að stöðva skip og fara um borð til að kanna alla saminga. Hér kemur frétt frá veitingarmanni. Nánast ómögulegt að reka veitingastað við núverandi aðstæður,“ skrifar Jóhann Símonar.
„Elsku Heimir. Stjórnmálamenn eru vandinn. Ekki lausnin,“ skrifar Sighvatur og svona mætti lengi telja.