Heimir Karls segir þessa grein verða allir að lesa: „Stundum fallast manni alveg hendur“

Heimir Karls­son, út­varps­maður á Bylgjunni, spyr á Face­book í dag fyrir hverja stjórn­mála­menn eigin­lega vinna? Og deilir skjá­skoti af frétt Morgun­blaðsins um að líf­eyris­réttindi.

„Stundum fallast manni alveg hendur. Vert er að spyrja oftar; fyrir hverja halda stjórn­­mála­­menn sem til valda komast, eigin­­lega þeir vinni og í þágu hverra? Svarið er alla­vega oft; ekki al­­menning! Eitt af hlut­­verkum ráða­manna, sem hljóta kosningu í al­­mennum kosningum, er t.d. að ein­falda líf lands­manna eins og kostur er og bera hag okkar fyrir brjósti, en ekki flækja það og allt af því ,,stela" af honum spari­­­fé og líf­eyri!!!“ skrifar Heimir.

„Þessi grein, sem ALLIR ættu að lesa, er enn eitt dæmið um, þar sem stjórn­­mála­­mönnum/ráð­herrum, hefur mis­­tekist hrapa­­lega. Þetta er eitt dæmi af fjöl­­mörgum þar sem ó­­rétt­læti kerfisins er al­­gert. Kerfið hefur þanist út, er þungt og allt­of oft ó­­rétt­látt og ekki í þágu al­­mennings. Allt í boði of margra á­huga­lausra og oft getu­lausra stjórn­­mála­manna, sem setið hafa við völd síðustu ára­tugi a.m.k.“

„Ég skora á alla al­þingis­­menn að koma nú saman af krafti og ráðast að mein­­semdum og ó­­sann­­gjörnum hlutum í kerfinu. Og ef þið hafið ekki þekkingu og reynslu til þess að takast á við það, sem væri svo sem ekkert skrítið, því­­líkt bákn sem það er, fáið til ykkar fag­­fólk sem vinnur þá í þágu þjóðarinnar og skilur hana.
Eigum við ekki að vona að hér sé hafin vinna við að ein­falda kerfið og gera það manneskju­­legra?: Ríkis­­stjórn Ís­lands hefur skipað stýri­hóp fjögurra ráðu­neyta; for­­sætis­ráðu­neytis, fjár­­mála- og efna­hags­ráðu­neytis og heil­brigðis­ráðu­neytis, undir stjórn fé­lags- og vinnu­­markaðs­ráðu­neytis, og er hlut­­verk hópsins að hafa yfir­­­sýn yfir vinnu fé­lags- og vinnu­­markaðs­ráðu­neytisins er snýr að endur­­­skoðun á ör­orku­líf­eyris­­kerfinu í sam­ræmi við á­herslur í stjórnar­sátt­­mála ríkis­­stjórnarinnar,“ heldur hann á­fram.

„Stýri­hópnum er ætlað að hafa yfir­­lit yfir að­­gerðir og fram­­gang tíma­­settrar verk­efna­á­ætlunar ráðu­neytanna og skila greinar­­gerð um störf hópsins í lok skipunar­­tíma sem er 1. júní 2024.
Stein­grímur J. Sig­fús­­son hefur verið skipaður for­­maður stýri­hópsins. Aðrir með­limir eru:
Henný Hinz, til­­­nefnd af for­­sætis­ráðu­neyti,
Óli Björn Kára­­son, til­­­nefndur af fjár­­mála og efna­hags­ráðu­neyti,
Ey­gló Harðar­dóttir, til­­­nefnd af heil­brigðis­ráðu­neyti,“ bendir Heimir á að lokum.

Í færslunni hér að neðan er að finna skjá­skot af greininni.