Heimir Hannesson, blaðamaður DV, fer hamförum í grein sem hann skrifar á vef DV í kvöld. Hann segir að Katrín Jakobsdóttir, Willum Þór Þórsson, Bjarni Benediktsson og fleiri ráðherrar og stjórnmálamenn ekki mega baða sig í dýrðarljóma þegar sóttvarnartakmörkunum verður aflétt á föstudag.
„Að lofa þjóðinni afléttingaráætlun á föstudaginn er of lítið og of seint. Einhverjar hörðustu takmarkanir Íslandssögunnar voru lagðar á þjóðina fyrir 12 dögum síðan. Þær reyndust ekki hafa nein áhrif og hefur smitum bara fjölgað síðan,“ segir Heimir.
Við það bætist að landamæraaðgerðir séu of harðar og óverjandi í ljósi fjölda smita. „Sú stórundarlega og eitraða staða er þá jafnframt uppi í samfélaginu að í pólitískri umræðu virðist sönnunarbyrðin nú frekar hvíla á þeim sem vilja aflétta en þeim sem vilja halda í eða herða,“ segir hann. Þess í stað eigi að bíða og sjá hvort hægt verði að aflétta.
„Engum blöðum er um það að flétta að tilgangslausar takmarkanir síðustu tólf daga hafa kostað milljarða. Ljóst er að enginn mun þurfa að svara fyrir það fjáraustur, enda ekki pólitísk hefð fyrir því að láta pólitíkusa bera pólitíska ábyrgð á Íslandi,“ segir Heimir.
„Hins vegar er hætt við að þessir sömu pólitíkusar og fólu sérfræðingum að taka rangar ákvarðanir fyrir hálfum mánuði ætli nú að baða sig í dýrð afléttinga. Það má alls ekki gerast.“