Andrés Proppe, sérfræðingur í málefnum gerenda talar hreint út um alvarleika heimilisofbeldis í þættinum Undir yfirborðið sem sýndur verður á Hringbraut í kvöld.
Hann segir afleiðingar heimilisofbeldis skelfilegar fyrir börn og sé oft merkjanlegur í heilaskanna. Afleiðingarnar birtast m.a. í kvíða, athyglisbresti, námsörðugleikum og ofbeldishegðun.
Andrés segir það mikinn misskilning að halda að börn verði ekki fyrir áhrifum af spennuástandi á milli foreldra sinna. Börn pikka upp andrúmsloftið og verða jafnvel fyrir áhrifum í móðurkvið ef spenna ríkir á heimilinu. Ung börn taka líka á sig skömmina og ábyrgðina, kenna sér um ágreining á heimilinu. Þau hafa ekki forsendur til að sjá bresti í hegðun fullorðna fólksins segir Andrés. Það er því mjög mikilvægt að stoppa heimilisofbeldi sem fyrst og Andrés tekur undir skilaboð sem fram komu á upplýsingafundi almannavarna í gær, að foreldrar í mikilli vanlíðan, sem eiga á hættu að missa stjórn á sér, eigi að fari af heimilinu og leiti sér hjálpar. Neyðarsími vegna heimilisofbeldis yfir páskana er 664 8321
Neyðarsími fyrir þolendur heimilisofbeldis hefur verið opnaður og þar er svarað um páskana: 664 8321
Ekki missa af þættinum Undir yfirborðið sem sýndur er á Hringbraut í kvöld.